Stórleikur hjá Messi sem setti met

Lionel Messi lagði upp fimm mörk og skoraði eitt í …
Lionel Messi lagði upp fimm mörk og skoraði eitt í nótt. AFP

Lionel Messi og Luis Suárez áttu stórleik í 6:2 sigri Inter Miami á New York Red Bulls í banda­rísku MLS-deild­inni í fót­bolta í nótt.

Messi átti þátt í öllum mörkum Miami en hann lagði upp fimm þeirra, sem er stoðsendingamet í deildinni og skoraði svo eitt.

 Luis Suárez skoraði þrjú mörk eftir stoðsendingu frá Messi og Matias Roja skoraði tvö. Suárez lagði svo upp markið sem Messi skoraði.

Lionel Messi og Luis Suarez að fagna marki í leiknum.
Lionel Messi og Luis Suarez að fagna marki í leiknum. AFP/ Megan Briggs

Miami var 1:0 undir í hálfleik og öll sex mörk liðsins komu á rétt rúmlega hálftíma í seinni hálfleik.

 

Messi hefur nú skorað tíu mörk og lagt upp níu í átta leikjum í MLS-deildinni á þessu tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert