Guðný og Sigurður til Samtaka iðnaðarins

Guðný ber ábyrgð á framleiðsluiðnaði og Sigurður Helgi landbúnaði og …
Guðný ber ábyrgð á framleiðsluiðnaði og Sigurður Helgi landbúnaði og matvælaiðnaði. Samsett mynd/Samtök iðnaðarins

Guðný Hjaltadóttir og Sigurður Helgi Birgisson hafa verið ráðin viðskiptastjórar á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins (SI). 

Guðný ber ábyrgð á framleiðsluiðnaði og Sigurður Helgi landbúnaði og matvælaiðnaði.

Þetta kemur fram í tilkynningu SI.

Guðný er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og réttindi til að starfa sem héraðsdómslögmaður. Hún starfaði áður sem lögfræðingur Félags atvinnurekenda frá árinu 2018 og sem lögmaður hjá Lögmönnum Lækjargötu og Lögmönnum Höfðabakka.

Sigurður Helgi er með MA gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands. Hann starfaði áður hjá Landssambandi ungmennafélaga frá árinu 2019 sem lögfræðingur, starfandi framkvæmdastjóri og verkefnastjóri, og sem sérfræðingur hjá Elju – þjónustumiðstöð atvinnulífsins.

„Það er mikill fengur fyrir SI og félagsmenn samtakanna að fá þau Guðnýju og Sigurð Helga til liðs við okkur. Samtökin hafa stækkað umtalsvert á síðustu árum en sem dæmi gengu Samtök fyrirtækja í landbúnaði inn í SI um áramótin og mun Sigurður Helgi vinna með þeim. Guðný mun sinna fjölbreyttu starfi fyrir framleiðsluiðnað, þar á meðal orkusækinn iðnað. Það eru miklar áskoranir framundan í iðnaði en einnig stór tækifæri til framtíðar. Ráðning þeirra beggja eflir okkur enn frekar í hagsmunagæslu og þjónustu við félagsmenn,“ er haft eftir Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs SI í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK