Niðurstaða í kosningu VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna – um verkfall vélstjóra á fiskiskipum liggur fyrir.
Kosningu um verkfall vélstjóra á fiskiskipum lauk kl. 12 á hádegi í dag, 17. október 2016.
Á kjörskrá voru 472 félagsmenn VM. Af þeim kusu 339, eða 71,8%. Já sögðu 308, eða 90,8%. Nei sögðu 26, eða 7,7% og 5, eða 1,5%, skiluðu auðu.
Ótímabundið verkfall vélstjóra á fiskiskipum, sem mun hefjast kl. 23:00 10. nóvember 2016, var því samþykkt með tæplega 91% atkvæða.
„Það er ánægjulegt að sjá hversu góð þátttaka var í kosningu um boðun verkfalls hjá vélstjórum á fiskiskipum og hve niðurstaðan er afgerandi. Þessi niðurstaða, 71,8% þátttaka og 90,8% sem samþykkja að boða verkfall, hlýtur að vera viðsemjendum okkar alvarleg áminning um að að setjast að samningaborðinu með öðru hugarfari en okkur hefur verið sýnt frá 2011,“ segir Guðmundur Ragnarsson, formaður VM.
„Með þessa niðurstöðu munum við koma af fullum krafti í að fá alvöruviðræður við okkar viðsemjendur og fara í aðgerðir verði ekki búið að semja fyrir boðað verkfall.
Þeim mun trúlega bregða mörgum af stjórnendum útgerðafyrirtækja að vera komnir í þá stöðu að fara að semja við sitt fólk. Þar sem margir þeirra hafa þróað þá stjórnunarhætti að drottna og gefa skipanir. Umhverfið hefur þróast þannig að þeir hafa gefið skipanir og ekki þurfta að taka tillit til eins né neins. Það er ein af ástæðum þeirrar niðurstöðu sem við erum að sjá í þessari kosningu,“ bætir Guðmundur við.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.11.24 | 531,23 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.11.24 | 560,82 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.11.24 | 347,24 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.11.24 | 257,15 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.11.24 | 197,29 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.11.24 | 282,11 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.11.24 | 231,97 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 22.11.24 | 127,00 kr/kg |
22.11.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.657 kg |
Ýsa | 1.454 kg |
Ufsi | 9 kg |
Hlýri | 4 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 3.126 kg |
22.11.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Ýsa | 132 kg |
Þorskur | 123 kg |
Keila | 27 kg |
Ufsi | 13 kg |
Steinbítur | 7 kg |
Samtals | 302 kg |
22.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Þorskur | 382 kg |
Ýsa | 259 kg |
Samtals | 641 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.11.24 | 531,23 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.11.24 | 560,82 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.11.24 | 347,24 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.11.24 | 257,15 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.11.24 | 197,29 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.11.24 | 282,11 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.11.24 | 231,97 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 22.11.24 | 127,00 kr/kg |
22.11.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.657 kg |
Ýsa | 1.454 kg |
Ufsi | 9 kg |
Hlýri | 4 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 3.126 kg |
22.11.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Ýsa | 132 kg |
Þorskur | 123 kg |
Keila | 27 kg |
Ufsi | 13 kg |
Steinbítur | 7 kg |
Samtals | 302 kg |
22.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Þorskur | 382 kg |
Ýsa | 259 kg |
Samtals | 641 kg |