Auknar kröfur í öryggismálum sjómanna hafa litið dagsins ljós undanfarin misseri og ár, enda finnast fáir þeir staðir hér á landi sem talist gætu hættulegri en hafið. Því hlýtur það að teljast fagnaðarefni að útgerðir landsins séu farnar að taka öryggismál sjómanna föstum tökum og leggja vinnu og metnað í að gera þau mál sem best úr garði.
Í febrúar á þessu ári var skipað í nýja stöðu öryggisstjóra hjá einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, HB Granda. Öryggisstjóri heyrir beint undir forstjóra og markmið hans er að samræma öryggis- og vinnuverndarmál á vinnustöðvum HB Granda og lækka slysatíðni. Til starfsins var fengin J. Snæfríður Einarsdóttir.
Snæfríður sem er fædd og uppalin á Vopnafirði er vélstjóri með sveinspróf í vélvirkjun, BA-próf í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og lauk nú í sumar meistaranámi í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Hún hefur verið til sjós, unnið í smiðju, starfað í virkjun og hjá Vinnueftirlitinu, svo fátt eitt sé nefnt.
„Mitt hlutverk er í grunninn að ná ákveðinni samræmingu. Fyrirtækið hefur stækkað hratt og mitt starf felst í að samræma öryggismál á sjó og í landi og milli starfsstöðva. HB Grandi er stórt fyrirtæki með yfir 900 starfsmenn, níu skip, bolfiskvinnslu á Norðurgarði í Reykjavík, fimm starfsstöðvar á Akranesi og verða fljótlega orðnar þrjár á Vopnafirði, svo þetta eru margar og ólíkar starfsstöðvar,“ segir Snæfríður.
Snæfríður segir markmið HB Granda í öryggismálum skýrt; það sé að búa starfsmönnum okkar öruggt vinnuumhverfi og lágmarka slysahættu. Til að byrja með sé áherslan lögð á að virkja áhættumatið sem úrbótaverkfæri. „Áhættumötin hafa verið til í talsverðan tíma en verkefnið okkar núna er að gera þau virkari; fá fleiri til að taka þátt, taka ábyrgð og vera vakandi fyrir hættum sem leynast í kringum okkur. Við ætlum að sameinast um verkefnið með virkri þátttöku stjórnenda.“
Eins og sjómenn vita er stundum erfitt að athafna sig í lestum eldri skipa við að raða í kör og annað slíkt, og allt sem heitir erfiðar vinnuaðstæður er síst til þess fallið að auka öryggi viðkomandi starfsmanna.
„Við erum að endurnýja hluta af ísfiskskipunum okkar þar sem vinnuaðstaða sjómanna mun batna til muna, til dæmis í lestunum,“ segir hún.
„Við smíði nýju skipanna hafa menn verið að horfa til öryggismálanna sérstaklega, svo við teljum að vinnuaðstaða sjómanna muni batna til muna þegar þau verða komin í gagnið hjá okkur,“ bætir Snæfríður við.
Það er lögbundin skylda allra sjómanna hérlendis að sækja Slysavarnaskóla sjómanna. Sjómenn hafa verið skyldugir til að ljúka námskeiði Slysavarnaskólans síðan 1997. Árið 2003 kom síðan sú viðbót að gerð er krafa um endurmenntun á fimm ára fresti. Um áramótin taka svo gildi nýjar alþjóðlegar reglur sem kveða á um skyldu til aukinnar endurmenntunar.
Þar læra sjómenn sjóbjörgun, eldvarnir, skyndihjálp og öryggismál. Um borð í skólaskipinu Sæbjörgu er fullkomin kennsluaðstaða, bæði til bóklegrar kennslu og verklegra æfinga. Komi til eldsvoða til sjós er ljóst að erfitt kann að reynast að forða sér af vettvangi, og því er áhersla lögð á kennslu í notkun búnaðar til slökkvistarfa. Verklegar eldvarnaræfingar eru haldnar á þar til gerðu æfingasvæði rétt utan við Reykjavík og þá er fullkomin aðstaða til reykköfunaræfinga um borð í Sæbjörgu.
Öllu starfsfólki HB Granda stendur til boða að fara í heilsufarsskoðun einu sinni á ári, en þar að auki fara sjómenn í nánari skoðun annað hvert ár.