Aukið við frystigeymslur VSV

Fyrstu hlutar stálgrindar reistir 16. janúar 2017.
Fyrstu hlutar stálgrindar reistir 16. janúar 2017. Mynd af heimasíðu VSV.

Í vikubyrjun var hafist handa við að reisa stálgrind fyrir nýjan klefa frystigeymslu Vinnslustöðvarinnar á Eiði. Pólskt fyrirtæki framleiðir húsið og reisir það. Gert er ráð fyrir að viðbyggingin verði tilbúin í sumar og nýtist á komandi makrílvertíð.

Gólfflöturinn þrefaldast

Gólfflötur frystigeymslunnar nær þrefaldast með viðbyggingunni. Núverandi frystiklefi er tæplega 2.000 fermetrar og þjónusturýmið er liðlega 300 fermetrar. Nýbyggingin verður tvískipt á alls 3.800 fermetrum, að því er fram kemur á vefsvæði Vinnslustöðvarinnar.

Lofthæð er 7,5 metrar í núverandi húsi en verður 10 metrar í nýja hlutanum.

Í nýbyggingunni verður mótordrifið kerfi hreyfanlegra rekka sem stuðlar að betri nýtingu geymslurýmisins og gerir mun auðveldara og aðgengilegra en ella að setja frystivörur í klefana og taka úr þeim aftur.

Lofthæð er 7,5 metrar í núverandi húsi en verður 10 …
Lofthæð er 7,5 metrar í núverandi húsi en verður 10 metrar í nýja hlutanum. Mynd af heimasíðu VSV.

Aðalverktaki við stækkun frystigeymslunnar er Eykt, sá hinn sami og annaðist framkvæmdir við nýja uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar.

Pólskur undirverktaki reisir stálgrindahúsið, Yabimo frá borginni Tarmow í suðausturhluta Póllands. Þetta er stórt og mikið iðnfyrirtæki sem reisir stálmannvirki af ýmsu tagi og annars konar hús og mannvirki, svo sem brýr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 6.9.24 467,09 kr/kg
Þorskur, slægður 6.9.24 481,22 kr/kg
Ýsa, óslægð 6.9.24 224,29 kr/kg
Ýsa, slægð 6.9.24 124,83 kr/kg
Ufsi, óslægður 6.9.24 134,80 kr/kg
Ufsi, slægður 6.9.24 234,47 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 6.9.24 243,16 kr/kg
Litli karfi 1.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.9.24 259,98 kr/kg

Fleiri tegundir »

7.9.24 Bárður SH 81 Dragnót
Þorskur 2.802 kg
Skarkoli 731 kg
Ýsa 582 kg
Skrápflúra 252 kg
Langlúra 223 kg
Steinbítur 37 kg
Karfi 19 kg
Ufsi 16 kg
Hlýri 11 kg
Þykkvalúra 3 kg
Samtals 4.676 kg
7.9.24 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 8.297 kg
Keila 281 kg
Steinbítur 80 kg
Ýsa 69 kg
Ufsi 60 kg
Karfi 39 kg
Samtals 8.826 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 6.9.24 467,09 kr/kg
Þorskur, slægður 6.9.24 481,22 kr/kg
Ýsa, óslægð 6.9.24 224,29 kr/kg
Ýsa, slægð 6.9.24 124,83 kr/kg
Ufsi, óslægður 6.9.24 134,80 kr/kg
Ufsi, slægður 6.9.24 234,47 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 6.9.24 243,16 kr/kg
Litli karfi 1.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.9.24 259,98 kr/kg

Fleiri tegundir »

7.9.24 Bárður SH 81 Dragnót
Þorskur 2.802 kg
Skarkoli 731 kg
Ýsa 582 kg
Skrápflúra 252 kg
Langlúra 223 kg
Steinbítur 37 kg
Karfi 19 kg
Ufsi 16 kg
Hlýri 11 kg
Þykkvalúra 3 kg
Samtals 4.676 kg
7.9.24 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 8.297 kg
Keila 281 kg
Steinbítur 80 kg
Ýsa 69 kg
Ufsi 60 kg
Karfi 39 kg
Samtals 8.826 kg

Skoða allar landanir »