„Helmingur lækkunarinnar fer til tíu stærstu útgerðarfyrirtækja landsins,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, á Alþingi í morgun. Hún spurði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um fyrirhugað frumvarp um lækkun veiðigjalda.
Þorgerður sagði að í sjálfu sér væri ekkert athugavert ef það væri verið að ræða raunverulega lækkun á veiðigjöldum til lítilla eða minni útgerða sem raunverulega þurfa á því að halda en sú væri ekki raunin.
„Á síðustu metrum þingsins er erfitt að fá svona frumvarp sem er keyrt beint í gegnum þingið, það á að keyra þetta ofan í kokið á okkur og við verðum að gleypa það hvort sem okkur líkar betur eða verr,“ sagði Þorgerður.
Hún spurði Katrínu hvort hún myndi beita sér fyrir breytingum á frumvarpinu sem gætu leitt til meiri sátta á síðustu dögum í þá veru að heimildin til að taka veiðigjöld væri framlengd og hins vegar að reynt væri að einblína frekar á litlu fyrirtækin í gegnum persónuafsláttinn.
„Mun hún beita sér fyrir því að það verði að nýju skipuð þverpólitísk sáttanefnd til að við reynum að ná raunverulegri sátt um sjávarútveginn?“ sagði Þorgerður og beindi orðum sínum til Katrínar.
Katrín sagðist skilja gagnrýni að fá frumvarpið um veiðigjöld inn með svo skömmum fyrirvara. Hún hefði boðað til fundar með formönnum flokka í hádeginu til að ræða þinghaldið og þar með talið þetta mál.
„Hafandi sagt það vil ég þó segja að ég hefði átt von á að það væri flötur á því að ná meiri samstöðu um þau markmið sem birtast í frumvarpinu, þau markmið að færa útreikning veiðigjalda nær í rauntíma,“ sagði Katrín og bætti við að veiðigjöld ættu að vera afkomutengd.
„Ég er sammála því að veiðigjaldið þarf að afkomutengja að hluta til, en ekki að öllu leyti. Ég horfi ekki á það sem skatt. Ég horfi á það sem aðgangsmiða að auðlindinni,“ sagði Þorgerður.
Hún sagði að það væri ekki hart í ári hjá útgerðinni þó rekstrarhagnaðurinn hefði farið úr 22% í 16%.
„En er það léleg afkoma? Síður en svo. Ef við berum sjávarútveginn saman við allar aðrar atvinnugreinar — og ég horfi hér á ráðherra ferðamála sem ætti að hafa verulegar áhyggjur af stöðunni í ferðaþjónustu — sjáum við að sjávarútvegurinn er í grunninn vel rekin, vel stæð atvinnugrein,“ sagði Þorgerður og bætti við að það væri engin ástæða til að fara í þessa lækkun sem snúi helst að því að lækka veiðigjöld best stæðu og stærstu útgerða landsins.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.11.24 | 589,39 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.11.24 | 618,73 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.11.24 | 442,45 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.11.24 | 368,62 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.11.24 | 111,15 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.11.24 | 343,79 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.11.24 | 379,78 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 15.11.24 | 103,00 kr/kg |
21.11.24 Akurey AK 10 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 105.873 kg |
Karfi | 48.292 kg |
Ufsi | 3.805 kg |
Ýsa | 1.580 kg |
Samtals | 159.550 kg |
21.11.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 4.103 kg |
Ýsa | 3.375 kg |
Steinbítur | 24 kg |
Samtals | 7.502 kg |
21.11.24 Frár VE 78 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 19.942 kg |
Ýsa | 5.434 kg |
Ufsi | 1.052 kg |
Langa | 921 kg |
Skarkoli | 508 kg |
Karfi | 500 kg |
Samtals | 28.357 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.11.24 | 589,39 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.11.24 | 618,73 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.11.24 | 442,45 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.11.24 | 368,62 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 20.11.24 | 111,15 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.11.24 | 343,79 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.11.24 | 379,78 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 15.11.24 | 103,00 kr/kg |
21.11.24 Akurey AK 10 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 105.873 kg |
Karfi | 48.292 kg |
Ufsi | 3.805 kg |
Ýsa | 1.580 kg |
Samtals | 159.550 kg |
21.11.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 4.103 kg |
Ýsa | 3.375 kg |
Steinbítur | 24 kg |
Samtals | 7.502 kg |
21.11.24 Frár VE 78 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 19.942 kg |
Ýsa | 5.434 kg |
Ufsi | 1.052 kg |
Langa | 921 kg |
Skarkoli | 508 kg |
Karfi | 500 kg |
Samtals | 28.357 kg |