Veiðar á langreyð hófust í gærkvöldi á ný eftir tveggja ára dvala þegar Hvalur 8 hélt á miðin frá Hvalfirði. Hvalur hf. gerir út tvo hvalveiðibáta í sumar, Hval 8 og Hval 9. Sá síðarnefndi er enn í slipp en verður væntanlega klár strax upp úr helginni. Verið er að klára að setja í hann varahluti sem panta þurfti að utan.
Kvótinn í ár er 161 dýr, en Hvalur hf. hefur þar að auki heimildir til að færa hluta þess kvóta sem ekki var nýttur í fyrra yfir á þetta ár, og hefur fyrirtækið því heimild til að veiða tæplega 200 dýr á þessu ári. Árið 2015 veiddust 155 langreyðar.
Kristján Loftsson, stjórnarformaður Hvals hf., segir að veitt magn eigi eftir að ráðast að verulegu leyti af veðri. „Vertíðin er venjulega í kringum hundrað daga. Þetta fer allt eftir veðri og eins hvort hvalurinn liggi nær landi eða í dýpi. Veðrið er mikið atriði. Ef það eru brælur er minni veiði en ef það er gott veður. Þá gengur betur,“ segir Kristján í samtali við mbl.is.
Alls koma á milli 140 og 150 manns að hvalveiðunum að sögn Kristjáns; áhafnir skipanna beggja, í Hvalstöðinni í Hvalfirði og í Hafnarfirði þar sem fyrirtækið hefur einnig starfsemi.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.7.24 | 496,50 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.7.24 | 329,49 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.7.24 | 315,52 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.7.24 | 231,85 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.7.24 | 159,32 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.7.24 | 15,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 19.7.24 | 190,37 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
20.7.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 16 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Samtals | 29 kg |
20.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 319 kg |
Samtals | 319 kg |
20.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 261 kg |
Samtals | 261 kg |
20.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 259 kg |
Ýsa | 16 kg |
Ufsi | 10 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 289 kg |
20.7.24 Svanur BA 413 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 389 kg |
Samtals | 389 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.7.24 | 496,50 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.7.24 | 329,49 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.7.24 | 315,52 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.7.24 | 231,85 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.7.24 | 159,32 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.7.24 | 15,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 19.7.24 | 190,37 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
20.7.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 16 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Samtals | 29 kg |
20.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 319 kg |
Samtals | 319 kg |
20.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 261 kg |
Samtals | 261 kg |
20.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 259 kg |
Ýsa | 16 kg |
Ufsi | 10 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 289 kg |
20.7.24 Svanur BA 413 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 389 kg |
Samtals | 389 kg |