22 langreyðar komnar á land

22 langreyðar hafa verið dregnar á land frá því að …
22 langreyðar hafa verið dregnar á land frá því að hvalveiðar hófust fyrir þremur vikum. mbl.is/Golli

Hvalveiðar hafa farið ágætlega af stað í sumar að sögn Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals hf., en veiðst hafa 22 langreyðar frá því að veiðar hófust 20. júní. Hann segir veður þó hafa verið erfitt og skyggnið ekkert sérstakt þessar fyrstu þrjár vikur hvalveiðanna.

„Þetta hefur gengið svona upp og niður. Skyggnið hefur verið erfitt og annar bátanna fór af stað heldur seinna en áætlað var,“ segir Kristján en Hvalur 9 var sjósettur aðeins á eftir áætlun þar sem biðin eftir varahlutum var lengri en gert var ráð fyrir.

Báðir bátarnir hafa legið í Hvalfirði undanfarna tvo sólarhringa eða svo, vegna brælu, en að sögn Kristjáns munu þeir halda á miðin í dag. „Mest veiðin hefur verið suðvestur af Garðskaganum,“ segir Kristján.

Eftir að búið er að gera að hvölunum er kjötið fryst og geymt í frystigeymslu þar sem það bíður þar til að það er flutt út. Hvalur hf. hefur heimildir til að veiða tæplega 200 dýr á þessu ári.

Kristján sagði á dögunum að kjötið verði væntanlega selt til Japan í haust. Sagði hann aldrei hafa verið erfitt að finna kaupendur þar í landi heldur hafi efnagreiningar opinberra aðila í Japan torveldað viðskiptin. „Þeir hafa lofað því að taka upp þessar alþjóðlegu aðferðir héðan í frá,“ sagði Kristján í samtali við mbl.is í lok síðasta mánaðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.7.24 496,50 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.7.24 315,52 kr/kg
Ýsa, slægð 19.7.24 231,85 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.7.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 16 kg
Steinbítur 13 kg
Samtals 29 kg
20.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 319 kg
Samtals 319 kg
20.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 261 kg
Samtals 261 kg
20.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng
Þorskur 259 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 10 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 289 kg
20.7.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 389 kg
Samtals 389 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.7.24 496,50 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.24 329,49 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.7.24 315,52 kr/kg
Ýsa, slægð 19.7.24 231,85 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.7.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng
Þorskur 16 kg
Steinbítur 13 kg
Samtals 29 kg
20.7.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng
Þorskur 319 kg
Samtals 319 kg
20.7.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng
Þorskur 261 kg
Samtals 261 kg
20.7.24 Himbrimi BA 415 Sjóstöng
Þorskur 259 kg
Ýsa 16 kg
Ufsi 10 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 289 kg
20.7.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 389 kg
Samtals 389 kg

Skoða allar landanir »