Sérveiðileyfi verði felld úr gildi

Ráðherra segir endurskoðunina hafa verið löngu tímabæra.
Ráðherra segir endurskoðunina hafa verið löngu tímabæra. mbl/Arnþór Birkisson

Starfshópur sem hafði það hlutverk að gera faglega heildarendurskoðun á regluverki er varðar notkun veiðarfæra, veiðisvæði og verndunarsvæði á Íslandsmiðum hefur skilað lokaskýrslu ásamt tillögum til Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Segir í henni að stærstur hluti tillagna starfshópsins snúist um að einfalda og skýra regluverkið.

Samkvæmt tillögunum hafi reglugerðir breytt hafi verið oftar en tvisvar verið endurútgefnar, reglugerðir sem fjallað hafi um nánast sama efni verið sameinaðar og reglugerðir sem ekki hefur lengur verið beitt verið felldar úr gildi.

Nú þegar sé búið að einfalda regluverkið með því að fækka 34 reglugerðum niður í átta.

Fái að útfæra og þróa veiðarfærin

Hópurinn leggur til að sérveiðileyfi fyrir þær tegundir sem lúta aflamarki verði felld úr gildi, sem og sérveiðileyfi og svæðaskipting fyrir dragnót. Nú þegar hafi verið fallið frá því að gera kröfu um sérveiðileyfi í þeim tegundum sem lúta aflamarki og eru veiddar innan lögsögu, þ.e. gulllaxi, innfjarðarrækju, hörpudiski og íslenskri sumargotsíld með vörpu.

Þá er lagt til að núverandi reglum um fiskibotnvörpu verði breytt í þá veru að felld verði út ákvæði um lágmarksmöskva, sem í dag er 135 millimetrar, og að felld verði út ákvæði um smáfiskaskilju sem og margvíslegar reglur um styrktarbúnað á poka.

„Í þessu felst að útgerðum og skipstjórum verði heimilt að útfæra og þróa sín veiðarfæri sjálf, en um leið verði gerðar strangar kröfur um að ekki séu stundaðar skaðlegar veiðar, þ.e. veiðar á ungviði eða veiðar sem valda umtalsverðu raski á botni eða lífríki,“ segir í tilkynningunni.

Reglur um lokanir verði einfaldaðar

Hvað varðar lokanir svæða til verndunar ungviðis leggur hópurinn til að viðmiðunarmörk fyrir þorsk, ýsu og ufsa verði 50%, en þau eru nú 25% í þorski og 30% í ýsu og ufsa. Jafnframt er lagt til að lokað verði fyrir veiðar á svæðum þar sem mest hefur verið um skyndilokanir á grunnslóð. Með þessum aðgerðum eigi skyndilokunum að fækka töluvert.

Um leið er lagt til að öll friðunarsvæði vegna kórala og hrygningar verði enn í gildi auk þess sem svokölluð skiljusvæði verði felld úr gildi. Þá leggur starfshópurinn til að núgildandi friðunarsvæði verði rannsökuð og ákvörðun um framhald lokana verði teknar á grundvelli þeirra rannsókna.

Haft er eftir ráðherranum að heildarendurskoðun á regluverki um notkun veiðarfæra, veiðisvæða og verndunarsvæða á Íslandsmiðum hafi verið löngu tímabær og því fagni hann því að þessi skýrsla sé komin fram.

„Ég hef þegar sett af stað vinnu til að vinna áfram með tillögur hópsins með það að markmiði að stuðla að einfaldara og skýrara regluverki og tryggja góða umgengni um sjávarauðlindina.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 469,84 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 397,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 367,07 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 230,45 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Ufsi 606 kg
Þorskur 349 kg
Karfi 264 kg
Samtals 1.219 kg
22.7.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 93 kg
Samtals 93 kg
22.7.24 Áki Í Brekku SU 760 Handfæri
Þorskur 3.342 kg
Ufsi 1.247 kg
Keila 74 kg
Karfi 29 kg
Langa 29 kg
Samtals 4.721 kg
22.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Steinbítur 5 kg
Samtals 5 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 469,84 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 397,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 367,07 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 230,45 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Ufsi 606 kg
Þorskur 349 kg
Karfi 264 kg
Samtals 1.219 kg
22.7.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 93 kg
Samtals 93 kg
22.7.24 Áki Í Brekku SU 760 Handfæri
Þorskur 3.342 kg
Ufsi 1.247 kg
Keila 74 kg
Karfi 29 kg
Langa 29 kg
Samtals 4.721 kg
22.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Steinbítur 5 kg
Samtals 5 kg

Skoða allar landanir »