„Öll umsýsla og umgjörð öruggari“

Kristján Þór kynnti frumvarpið á blaðamannafundi í dag.
Kristján Þór kynnti frumvarpið á blaðamannafundi í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta er miklu einfaldara og auðskiljalegra. Við erum að einfalda stjórnsýsluna og færa álagningu veiðigjalds nær í tíma,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um nýtt frumvarp um veiðigjöld sem hann hefur lagt fram á Alþingi.

Kristján Þór segir að nauðsynlegt sé að koma málunum fyrir í betra horfi. „Það að ríkisskattstjóri taki að sér þetta hlutverk í framtali er meðal annars spurning um aukið gagnsæi og öryggi í meðferð upplýsinga.“

Álagning veiðigjalda, upplýsingaöflun og meðferð upplýsinga verður í höndum ríkisskattstjóra verði frumvarpið að lögum. „Svo kemur fiskistofa sömuleiðis þar inn og verða þetta tvær meginstofnanirnar. Þá styðjumst við ekki lengur við skýrslu Hagstofunnar um hag veiða og vinnslu og ekki heldur við veiðigjaldsnefnd. Þarna erum við búin að færa þetta undir stofnanir ríkisins. Þá verður öll umsýsla og umgjörð öruggari og betri.“

Á von á sátt um regluverkið en ekki upphæðina

Spurður um samráð við hagsmunaaðila segir Kristján Þór að áherslur þeirra hafi komið vel í ljós á liðnum árum og ekki síst í tengslum við umræðurnar sem fram fóru í tengslum við það frumvarp sem lagt var fram í vor en varð ekki að lögum.

„Hagsmunaaðilum mun einnig  gefast kostur á því núna að fá kynningu á frumvarpinu í ráðuneytinu, að koma fyrir þingnefndina og senda henni umsagnir, með sínum sjónarmiðum og röksemdum. Hagsmunaaðilar, ásamt öllum öðrum í þjóðfélaginu, munu hafa færi til þess að gera athugasemdir við frumvarpið,“ segir Kristján Þór, sem hyggur á fundaferð um landið í október, þar sem hann mun ræða við hagsmunaaðila.

Gildandi lög um veiðigjöld renna út um áramótin og þarf nýtt frumvarp því að taka gildi 1. janúar 2019. Kristján Þór er bjartsýnn á að sátt verði um regluverkið sjálft en á von á því að skiptar skoðanir verði um upphæð gjaldsins. „Ég vonast eftir því að við getum náð ágætlega saman um það hvernig við ætlum að reikna gjaldið út, sem ég held að þetta frumvarp gefi alveg fullt færi til. Svo getum við og munum örugglega hafa eðlilega skiptar skoðanir um þá fjárhæð sem atvinnugreininni er ætlað að greiða af fiskveiðaauðlindinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.2.25 623,92 kr/kg
Þorskur, slægður 9.2.25 790,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.2.25 455,61 kr/kg
Ýsa, slægð 9.2.25 411,58 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.2.25 245,09 kr/kg
Ufsi, slægður 7.2.25 303,57 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 9.2.25 380,63 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót
Þorskur 1.528 kg
Skarkoli 1.359 kg
Sandkoli 735 kg
Steinbítur 105 kg
Grásleppa 30 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 3.782 kg
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 75 kg
Steinbítur 47 kg
Ýsa 31 kg
Þorskur 28 kg
Samtals 181 kg
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 460 kg
Langa 172 kg
Ýsa 93 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 7 kg
Samtals 775 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.2.25 623,92 kr/kg
Þorskur, slægður 9.2.25 790,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.2.25 455,61 kr/kg
Ýsa, slægð 9.2.25 411,58 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.2.25 245,09 kr/kg
Ufsi, slægður 7.2.25 303,57 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 9.2.25 380,63 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót
Þorskur 1.528 kg
Skarkoli 1.359 kg
Sandkoli 735 kg
Steinbítur 105 kg
Grásleppa 30 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 3.782 kg
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 75 kg
Steinbítur 47 kg
Ýsa 31 kg
Þorskur 28 kg
Samtals 181 kg
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 460 kg
Langa 172 kg
Ýsa 93 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 7 kg
Samtals 775 kg

Skoða allar landanir »