Ákvörðun um starfsleyfi felld úr gildi

Fiskeldi við Hlaðseyri í Patreksfirði.
Fiskeldi við Hlaðseyri í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvarðanir Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfa fyrir rekstraraðilana Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. í Patreks- og Tálknafirði. Áður hafði úrskurðarnefnd fellt úr gildi ákvarðanir Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfa til sömu aðila á grundvelli sömu röksemda.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.

Úrskurðarnefnd telur að álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna geti ekki verið grundvöllur leyfisveitinga vegna skorts á umfjöllun um valkosti.

„Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvernig brugðist verður við niðurstöðum úrskurðanna en farið verður yfir mögulegar lausnir með umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Seiði hafa einungis verið sett út á einu eldissvæði og umfang því lítið enn sem komið er,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að Umhverfisstofnun hafi í umsögn sinni til úrskurðarnefndar, vegna beiðni rekstraraðila um frestun réttaráhrifa úrskurðanna, mælt með því að réttaráhrifum verði frestað á meðan málin verði til meðferðar hjá dómstólum. Byggir sú afstaða á því að stofnunin telur að útgáfa starfsleyfa hafi verið í samræmi við lög og reglur.

Tekur ekki undir röksemdir nefndarinnar

„Tekur stofnunin ekki undir röksemdir úrskurðarnefndarinnar um að álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum hafi ekki verið lögmætur grundvöllur fyrir ákvörðun um veitingu leyfa til framkvæmda. Einnig skal bent á að úrskurðarnefndin leitaði ekki umsagnar Skipulagsstofnunar í rannsókn sinni á málinu áður en hún kvað upp úrskurð sinn sem lýsti annmörkum á umhverfismatsferlinu. Stofnunin telur því að úrskurðarnefndin hafi ekki haft mikilvæg sjónarmið til grundvallar áður en úrskurðir féllu, einkum um raunhæfa valkosti,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að úrskurðarnefnd telji að skyldur leyfisveitanda nái ekki einvörðungu til þess að taka afstöðu til þeirra efnislegu niðurstaðna sem í áliti Skipulagsstofnunar felast heldur einnig til þess að kanna hvort aðrir annmarkar geti verið til staðar, s.s. að skort hafi á umfjöllun um valkosti.

„Umhverfisstofnun telur að í því felist krafa um formlegt og efnislegt endurmat leyfisveitanda á áliti Skipulagsstofnunar. Úrskurðurinn sýnir þörf á að skýrt verði nánar í lögum hvert sé hlutverk leyfisveitanda hvað varðar ábyrgð á áliti um mat á umhverfisáhrifum. Mikilvægt er að árétta að leyfin eru ógilt á grundvelli þess að umhverfismati hafi verið áfátt en ekki að skilyrði í starfsleyfi um mengunarvarnir hafi verið ófullnægjandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 474,47 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 365,15 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,16 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 1.241 kg
Keila 166 kg
Þorskur 115 kg
Skarkoli 8 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.540 kg
22.7.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Keila 575 kg
Karfi 477 kg
Þorskur 302 kg
Hlýri 140 kg
Ufsi 4 kg
Grálúða 3 kg
Samtals 1.501 kg
22.7.24 Djúpey BA 151 Grásleppunet
Grásleppa 745 kg
Samtals 745 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 474,47 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 365,15 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,16 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 1.241 kg
Keila 166 kg
Þorskur 115 kg
Skarkoli 8 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.540 kg
22.7.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Keila 575 kg
Karfi 477 kg
Þorskur 302 kg
Hlýri 140 kg
Ufsi 4 kg
Grálúða 3 kg
Samtals 1.501 kg
22.7.24 Djúpey BA 151 Grásleppunet
Grásleppa 745 kg
Samtals 745 kg

Skoða allar landanir »