Gera athugasemdir við frétt RÚV

Fiskeldi við Hlaðseyri í Patreksfirði.
Fiskeldi við Hlaðseyri í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Bæjarstjóri Vesturbyggðar, Rebekka Hilmarsdóttir, og oddviti Tálknafjarðarhrepps, Bjarnveig Guðbrandsdóttir, gera alvarlegar athugasemdir við fréttaflutning Ríkisútvarpsins um eldi í Patreksfirði og Tálknafirði þar sem haft er eftir Óttari Yngvarssyni, lögmanni náttúruverndarsamtaka og veiðirétthafa, að aðeins 5 til 10 manns séu í vinnu við eldi í Patreksfirði og 25 manns í vinnu við eldi í Arnarfirði.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu.

„Þessari fullyrðingu er harðlega mótmælt enda er hún ekki byggð á staðreyndum né gögnum um fjölda starfa. Hið rétta er að bein störf fiskeldisfyrirtækjanna á svæðinu eru 170 talsins. Þess er krafist að Ríkisútvarpið leiðrétti fréttina og hvetja til þess að miðillinn vandi betur fréttaflutning sinn,“ segir í yfirlýsingunni.

Óttar Yngvason, lögmaður náttúruverndarsamtaka og veiðiréttarhafa, sagði í frétt RÚV að sjókvíaeldi í Patreksfirði og Tálknafirði sé úr sögunni eftir niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Hann sagði það jafnframt staðleysu að niðurstaðan þýði atvinnuleysi.

„Við þetta eldi í Patreksfirði þá eru kannski komnir til vinnu þar fimm til tíu manns, ef það eru svo margir.  Staðhæfingar um að þetta séu 150 manns í vinnu við til dæmis Arnarlax eldið í Arnarfirði og þetta byrjaða í Patreksfirði, það er hreint rugl. Ég myndi telja að það væru til dæmis í Arnarfirðinum kannski 25 manns í vinnu þar og í Patreksfirðinum kannski fimm til tíu mann,“ sagði hann við RÚV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 469,84 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 397,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 367,07 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 230,45 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Ufsi 606 kg
Þorskur 349 kg
Karfi 264 kg
Samtals 1.219 kg
22.7.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 93 kg
Samtals 93 kg
22.7.24 Áki Í Brekku SU 760 Handfæri
Þorskur 3.342 kg
Ufsi 1.247 kg
Keila 74 kg
Karfi 29 kg
Langa 29 kg
Samtals 4.721 kg
22.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Steinbítur 5 kg
Samtals 5 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 469,84 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 397,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 367,07 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 230,45 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Ufsi 606 kg
Þorskur 349 kg
Karfi 264 kg
Samtals 1.219 kg
22.7.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 93 kg
Samtals 93 kg
22.7.24 Áki Í Brekku SU 760 Handfæri
Þorskur 3.342 kg
Ufsi 1.247 kg
Keila 74 kg
Karfi 29 kg
Langa 29 kg
Samtals 4.721 kg
22.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Steinbítur 5 kg
Samtals 5 kg

Skoða allar landanir »