Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir Óttar Yngvason, lögmann náttúruverndarsamtaka og veiðirétthafa, hafa farið með rangfærslur í Kastljósi í kvöld. Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Guðmundur að bæjarfélagið hafi fengið „rasistatusku í andlitið“ með ummælum Óttars.
Í Kastljósi fyrr í kvöld var rætt við Óttar vegna ákvörðunar úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál um að ógilda bæði starfs- og rekstrarleyfi Arctic fish og Arnarlax fyrir fiskeldi í Patreksfirði og Tálknafirði. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hyggst leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um fiskeldi sem gerir ráð fyrir að í þeim tilvikum sem rekstrarleyfi er fellt úr gildi geti ráðherra að fenginni umsögn Matvælastofnunar gefið út rekstrarleyfi til bráðabirgða til allt að tíu mánaða.
Í Kastljósi í kvöld fullyrti Óttar meðal annars að um 10-15 störf væri að ræða hjá fyrirtækjunum tveimur og sagði: „Og mest eru það Pólverjar og útlendingar.“ Þá fullyrti hann að þarna ættu þeir einungis bráðabirgðaheimili.
Guðmundur segir Óttar fara með rangt mál varðandi starfsmannafjöldann, en að rangfærslur lögmannsins hafi ekki verið athugaverðast við viðtalið, heldur „þessi grímulausa andúð lögmannsins á fólki af erlendum uppruna. Þetta eru semsagt ekki alvöru störf og alvöru fólk hérna fyrir vestan, heldur bara „einhverjir útlendingar (aðallega Pólverjar)“ sem geta bara farið eitthvað annað,“ segir í færslu Guðmundar.
Hann er ekki sá eini sem hefur gert athugasemd við orð Óttars. Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax ehf., sagði í samtali við mbl.is fyrr í kvöld að ummæli hans um erlent starfsfólk fyrirtækisins og fjárfesta væru ótrúleg og eins og úr grárri forneskju.
Guðmundur segist ekki vera reiður vegna ummælanna heldur dapur. „Aðallega lögmannsins vegna, en líka vegna þess að hér stöndum við, í okkar ljómandi fallega fjölmenningarsamfélagi fyrir vestan, sem okkur hefur lánast að byggja upp og viðhalda af myndarbrag. En fáum svo eina svona svellkalda rasistatusku í andlitið í einhverju karlakarpi um eitthvað allt annað mál og veigaminna,“ segir í færslu bæjarstjórans, sem endar hana á orðunum: „Takk fyrir það, laxmaður.“
Uppfært 13.58: