Frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um breytingar á lögum um fiskeldi, var samþykkt á Alþingi á tólfta tímanum í kvöld. Frumvarpið felur í sér heimild til ráðherra til þess að gefa út rekstrarleyfi til bráðabirgða vegna fiskeldis.
Frumvarpið var samþykkt með 45 greiddum atkvæðum. Sex sátu hjá og nefndu þeir þingmenn helst þá ástæðu að þeir væru ósáttir við hversu hröð málsmeðferðin var.
Ráðherra sagðist vera þakklátur fyrir þann skilning sem þingmenn hafa sýnt frumvarpinu. „Ég geri mér grein fyrir að þetta mál er undir mikilli pressu en ég ítreka þakkir fyrir þann skilning sem þingmenn sýna því að það er brýn nauðsyn að bregðast skjótt við,“ sagði Kristján Þór meðal annars.
Frumvarpið var lagt fram eftir að úrskurðarnefnd um umhverfis- og auðlindamál ógilti bæði starfs- og rekstrarleyfi Fjarðalax og Arnarlax fyrir fiskeldi í Patreksfirði og Tálknafirði.
Ráðherra lagði fram frumvarpið við upphaf þingfundar í dag eftir hádegi. Áður fór fram fundur í atvinnuveganefnd Alþingis. Þingfundi var frestað laust eftir klukkan 18 og hófst þá aftur fundur í atvinnuveganefnd. Þingfundur hófst aftur klukkan kortér yfir tíu í kvöld þar sem önnur og þriðja umræðu fóru fram áður en frumvarpið var samþykkt.
Helga Vala Helgadóttir kvaddi sér hljóðs við atkvæðagreiðslu um frumvarpið og sagði hún að verið sé að bregðast við með ófullnægjandi hætti og kallaði hún atburðarás síðustu daga stjórnsýsluklúður. „Hvað gerist svo? Hvenær þurfum við að lagfæra það sem við gerum hér í dag?“ spurði þingmaðurinn.
Frumvarpið öðlast þegar gildi og verður sent ríkisstjórninni sem lög frá Alþingi.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.12.24 | 710,33 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.12.24 | 707,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.12.24 | 401,74 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.12.24 | 174,32 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.12.24 | 209,66 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.12.24 | 76,84 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 18.12.24 | 42,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.12.24 | 140,85 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
21.12.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Karfi | 261 kg |
Þorskur | 203 kg |
Keila | 107 kg |
Ýsa | 37 kg |
Samtals | 608 kg |
21.12.24 Benni ST 5 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 11.697 kg |
Ýsa | 99 kg |
Steinbítur | 45 kg |
Keila | 4 kg |
Samtals | 11.845 kg |
21.12.24 Björg EA 7 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 103.876 kg |
Ýsa | 944 kg |
Samtals | 104.820 kg |
20.12.24 Guðmundur í Nesi RE 13 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 189.310 kg |
Þorskur | 103.686 kg |
Grálúða | 54.139 kg |
Gulllax | 9.379 kg |
Blálanga | 7.603 kg |
Ufsi | 2.610 kg |
Hlýri | 1.608 kg |
Steinbítur | 1.339 kg |
Ýsa | 605 kg |
Langa | 334 kg |
Arnarfjarðarskel | 207 kg |
Keila | 76 kg |
Kolmunni | 26 kg |
Samtals | 370.922 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.12.24 | 710,33 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.12.24 | 707,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.12.24 | 401,74 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.12.24 | 174,32 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.12.24 | 209,66 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.12.24 | 76,84 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 18.12.24 | 42,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.12.24 | 140,85 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
21.12.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Karfi | 261 kg |
Þorskur | 203 kg |
Keila | 107 kg |
Ýsa | 37 kg |
Samtals | 608 kg |
21.12.24 Benni ST 5 Landbeitt lína | |
---|---|
Þorskur | 11.697 kg |
Ýsa | 99 kg |
Steinbítur | 45 kg |
Keila | 4 kg |
Samtals | 11.845 kg |
21.12.24 Björg EA 7 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 103.876 kg |
Ýsa | 944 kg |
Samtals | 104.820 kg |
20.12.24 Guðmundur í Nesi RE 13 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 189.310 kg |
Þorskur | 103.686 kg |
Grálúða | 54.139 kg |
Gulllax | 9.379 kg |
Blálanga | 7.603 kg |
Ufsi | 2.610 kg |
Hlýri | 1.608 kg |
Steinbítur | 1.339 kg |
Ýsa | 605 kg |
Langa | 334 kg |
Arnarfjarðarskel | 207 kg |
Keila | 76 kg |
Kolmunni | 26 kg |
Samtals | 370.922 kg |