Lítið mældist bæði af eldri og yngri loðnu

Nótin gerð klár.
Nótin gerð klár. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Heildarmagn loðnu í leiðangri Hafrannsóknastofnunar í september mældist 337 þúsund tonn og þar af var metin stærð veiðistofns vertíðarinnar 2018/2019 um 238 þúsund tonn.

Fram hefur komið að í samræmi við aflareglu gefur þessi niðurstaða ekki tilefni til þess að mæla með upphafskvóta, en stærð stofnsins verður mæld að nýju í janúar. Þá mældust einungis tæplega 11 milljarðar eða 99 þúsund tonn af ungloðnu í leiðangrinum en samkvæmt aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt verði með upphafsaflamarki fiskveiðiársins 2019/2020.

Bergmálsmælingar á stærð loðnustofnsins fóru fram á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundsyni auk uppsjávarskipsins EROS 6.-27. september. Rannsóknasvæðið náði frá landgrunninu við A-Grænland frá um 75°00'N og suðvestur með landgrunnskanti Grænlands allt suður fyrir Hvarf, en auk þess til Grænlandssunds, Íslandshafs og hafsvæðisins vestan Jan Mayen auk norðurmiða.

Samkvæmt frétt Hafrannsóknastofnunar fannst loðna víða á rannsóknasvæðinu. Ungloðna, sem myndar hrygningar- og veiðistofninn á vertíðinni 2019/2020, var vestast og sunnantil á svæðinu en eldri loðna var mest áberandi út af Vestfjörðum og norður með landgrunni Grænlands. Útbreiðsla loðnunnar var mjög vestlæg, líkt og verið hefur undanfarin ár. Þó var hærra hlutfall hennar út af Vestfjörðum en verið hefur síðastliðin ár en jafnframt fannst kynþroska loðna nær Grænlandi en áður hefur sést í sambærilegum leiðöngrum.

Gildandi aflaregla byggist á því að skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygningar í mars 2019 með 95% líkum. Tekur aflareglan tillit til óvissumats útreikninganna, vaxtar og náttúrulegrar dánartölu loðnu, auk afráns þorsks, ýsu og ufsa á loðnu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 469,84 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 397,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 367,07 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 230,45 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Ufsi 606 kg
Þorskur 349 kg
Karfi 264 kg
Samtals 1.219 kg
22.7.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 93 kg
Samtals 93 kg
22.7.24 Áki Í Brekku SU 760 Handfæri
Þorskur 3.342 kg
Ufsi 1.247 kg
Keila 74 kg
Karfi 29 kg
Langa 29 kg
Samtals 4.721 kg
22.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Steinbítur 5 kg
Samtals 5 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 469,84 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 397,62 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 367,07 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 230,45 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.7.24 159,32 kr/kg
Ufsi, slægður 19.7.24 15,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 19.7.24 190,37 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Ufsi 606 kg
Þorskur 349 kg
Karfi 264 kg
Samtals 1.219 kg
22.7.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 93 kg
Samtals 93 kg
22.7.24 Áki Í Brekku SU 760 Handfæri
Þorskur 3.342 kg
Ufsi 1.247 kg
Keila 74 kg
Karfi 29 kg
Langa 29 kg
Samtals 4.721 kg
22.7.24 Bobby 11 ÍS 371 Sjóstöng
Steinbítur 5 kg
Samtals 5 kg

Skoða allar landanir »