Á annað hundrað óska eftir félagsfundi

Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, og Heiðveig María Einarsdóttir formannsframbjóðandi.
Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands, og Heiðveig María Einarsdóttir formannsframbjóðandi. mbl.is/Hari mbl.is/Eggert

Vel á annað hundrað manns hafa óskað eftir að stjórn Sjómannafélags Íslands boði innan sólarhrings til félagsfundar, í ljósi grafalvarlegrar stöðu félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send hefur verið 200 mílum.

Um er að ræða undirskriftalista sem sjá má á vefnum Ísland.is, en þar er lögmæti undirskriftar kannað jafnóðum enda kerfið hannað til að geta haldið utan um undirskriftasafnanir hvers konar.

Heiðveig verði boðuð á fundinn

Þess er sérstaklega óskað að Heiðveig María Einarsdóttir, formannsframbjóðandi sem vikið var úr félaginu vegna ásakana á hendur stjórn félagsins, verði boðuð á fundinn vegna óljóss lögmætis brottvikningarinnar.

Enn fremur er lagt til að fenginn verði óháður og vanur fundarstjóri til að stjórna fundinum, þar sem búast megi við átakamiklum fundi. Lagt er til að Einar Gautur Steingrímsson lögmaður verði fenginn til að sinna því verki.

Þá er þess óskað að ráðstafanir verði gerðar til að félagsmenn sem búa fjarri höfuðborginni og/eða séu á sjó geti tekið þátt á fundinum með fjarfundartækni og að fengið verði upplýsingatæknifyrirtæki á borð við Advania til að stýra tæknimálum er varða fjarfundarbúnað og rafræna kosningu.

Hafi tveggja sólarhringa fyrirvara

Einnig er stjórnin beðin um að hafa tveggja sólarhringa fyrirvara í fundarboðinu og er vísað til 19. greinar laga félagsins, sem hljóðar svo: 

Félagsfundur skal haldinn þegar stjórnin álítur tilefni til eða ef að minnsta kosti 100 félagsmenn óska þess skriflega enda sé um leið gerð grein fyrir verkefni slíks fundar. Félagsfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað. Til fundar skal boða með tveggja sólarhringa fyrirvara. Ef félagsfundur er haldinn undir sérstökum kringumstæðum og tveir sólarhringar ekki liðnir frá því að fundur var boðaður ber í upphafi fundar að leita samþykkis fundarmanna um að fundurinn skuli teljast lögmætur. Félagsfundur getur ekki ákvarðað fjárhagsskuldbindingar.“

Á vef undirskriftalistans segir þá:

„Okkur, sem setjum nafn okkar á þennan undirskriftarlista, finnst mikilvægt að félagsfundur komi saman í því skyni að félagsmenn geti tekið afstöðu til þess hver séu gildandi lög félagsins og leiðbeint stjórn Sjómannafélags Íslands í því efni áður en lengra er haldið. Máli okkar til stuðning vísum við til réttmætisreglunnar og til mikilvægis þess að ekki leiki vafi á gildandi lögum í félaginu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.11.24 593,32 kr/kg
Þorskur, slægður 13.11.24 534,98 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.11.24 396,87 kr/kg
Ýsa, slægð 13.11.24 380,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.11.24 217,00 kr/kg
Ufsi, slægður 13.11.24 322,30 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 13.11.24 304,54 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.11.24 277,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.11.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Ýsa 4.367 kg
Þorskur 632 kg
Sandkoli 111 kg
Samtals 5.110 kg
13.11.24 Ólafur Bjarnason SH 137 Dragnót
Ýsa 733 kg
Þorskur 627 kg
Skrápflúra 534 kg
Sandkoli 115 kg
Skarkoli 96 kg
Steinbítur 83 kg
Samtals 2.188 kg
13.11.24 Þinganes SF 25 Botnvarpa
Þorskur 51.426 kg
Ýsa 5.628 kg
Ufsi 514 kg
Karfi 444 kg
Hlýri 147 kg
Langa 91 kg
Þykkvalúra 89 kg
Steinbítur 46 kg
Grálúða 27 kg
Keila 14 kg
Blálanga 13 kg
Skötuselur 6 kg
Samtals 58.445 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.11.24 593,32 kr/kg
Þorskur, slægður 13.11.24 534,98 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.11.24 396,87 kr/kg
Ýsa, slægð 13.11.24 380,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.11.24 217,00 kr/kg
Ufsi, slægður 13.11.24 322,30 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 13.11.24 304,54 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 3.11.24 277,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.11.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Ýsa 4.367 kg
Þorskur 632 kg
Sandkoli 111 kg
Samtals 5.110 kg
13.11.24 Ólafur Bjarnason SH 137 Dragnót
Ýsa 733 kg
Þorskur 627 kg
Skrápflúra 534 kg
Sandkoli 115 kg
Skarkoli 96 kg
Steinbítur 83 kg
Samtals 2.188 kg
13.11.24 Þinganes SF 25 Botnvarpa
Þorskur 51.426 kg
Ýsa 5.628 kg
Ufsi 514 kg
Karfi 444 kg
Hlýri 147 kg
Langa 91 kg
Þykkvalúra 89 kg
Steinbítur 46 kg
Grálúða 27 kg
Keila 14 kg
Blálanga 13 kg
Skötuselur 6 kg
Samtals 58.445 kg

Skoða allar landanir »