Fiskeldisfyrirtækin Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. hafa fengið rekstrarleyfi til bráðabirgða til 10 mánaða fyrir laxeldi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði, samkvæmt ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Matvælastofnun hafði veitt fyrirtækjunum rekstrarleyfi í lok árs 2017 en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála fellt þau úr gildi 27. september.
Með breytingum sem gerðar voru á lögum um fiskeldi í síðasta mánuði var ráðherra veitt heimild, að fenginni umsögn Matvælastofnunar, að gefa út tímabundið rekstrarleyfi til allt að 10 mánaða.
Við ákvörðun leyfis til Arctic Sea Farm og Fjarðalax var óskað eftir umsögnum frá Matvælastofnun, Byggðastofnun, Skipulagsstofnun og Umhverfisstofnun. Jafnframt var andmælendum veitt tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Rekstrarleyfin sem veitt eru til bráðabirgða eru bundin ákveðnum skilyrðum, m.a. skal Matvælastofnun hafa eftirlit með fjölda útsettra laxaseiða, leyfishafi ber ábyrgð á vöktun og rannsóknum til að meta vistfræðileg áhrif á nánasta umhverfi og leyfishafa ber skylda til að nota erfðavísa þannig að unnt sé að rekja uppruna eldislaxa til ákveðinna sjókvíaeldisstöðva.
Auk þess ber fyrirtækjunum að hefjast þegar handa við að bæta úr þeim göllum sem úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindarmála taldi vera á málsmeðferð við útgáfu rekstrarleyfisins sem ógilt var og/eða láta reyna á lögmæti ógildingu þeirra fyrir dómsstólum.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.7.24 | 472,04 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.7.24 | 397,62 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.7.24 | 366,87 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.7.24 | 230,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.7.24 | 246,57 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.7.24 | 223,45 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 22.7.24 | 608,07 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
22.7.24 Beta SU 161 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 439 kg |
Ufsi | 116 kg |
Samtals | 555 kg |
22.7.24 Halldór NS 302 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.879 kg |
Samtals | 1.879 kg |
22.7.24 Tóki ST 100 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 159 kg |
Ufsi | 13 kg |
Karfi | 13 kg |
Samtals | 185 kg |
22.7.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 606 kg |
Þorskur | 349 kg |
Karfi | 264 kg |
Samtals | 1.219 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.7.24 | 472,04 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.7.24 | 397,62 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.7.24 | 366,87 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.7.24 | 230,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.7.24 | 246,57 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.7.24 | 223,45 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 22.7.24 | 608,07 kr/kg |
Litli karfi | 8.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
22.7.24 Beta SU 161 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 439 kg |
Ufsi | 116 kg |
Samtals | 555 kg |
22.7.24 Halldór NS 302 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.879 kg |
Samtals | 1.879 kg |
22.7.24 Tóki ST 100 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 159 kg |
Ufsi | 13 kg |
Karfi | 13 kg |
Samtals | 185 kg |
22.7.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 606 kg |
Þorskur | 349 kg |
Karfi | 264 kg |
Samtals | 1.219 kg |