N1 skiptir út olíu fyrir skipaflotann

„Þetta er hins vegar verkefni sem lýkur aldrei en við …
„Þetta er hins vegar verkefni sem lýkur aldrei en við leggjum okkar lóð á vogarskálarnar,“ segir framkvæmdastjórinn.

N1 mun frá og með næstu áramótum hætta sölu á svokallaðri Marine Diesel Oil (MDO) til íslenska skipaflotans. Umrædd olíutegund hefur verið notuð á stærri skip sem kjósa að nota ekki svartolíu, en hún hefur þó 0,25% brennisteinsinnihald.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá olíufélaginu. Segir þar að í stað áðurnefndrar olíu muni N1 flytja inn og selja á skipaflotann olíu sem inniheldur aldrei meira en 0,1% brennistein.

Kolefnisjafna flug og notkun bíla

„N1 hefur undanfarin ár einbeitt sér af síauknum krafti að umhverfismálum og sem hluta af samfélagsábyrgð fyrirtækisins leitum við allra leiða til að verða grænni og betri fyrir umhverfið. Þannig kolefnisjöfnum við allt flug og notkun bíla N1 með samningi við Kolvið. Við settum okkur skýr markmið varðandi losun gróðurhúsalofttegunda, erum sífellt að minnka úrgang og við drögum verulega úr óflokkuðum úrgangi, svo dæmi séu tekin,“ er haft eftir Hinriki Erni Bjarnasyni, framkvæmdastjóra N1.

„Þetta er hins vegar verkefni sem lýkur aldrei en við leggjum okkar lóð á vogarskálarnar með því að reyna að minnka fótspor á þeim vörum sem við seljum. Breytingin á olíunni er dæmi um slíkt,“ segir Hinrik Örn.

Bent er á að fram undan séu frekari breytingar. Í ársbyrjun 2020 taki gildi ný reglugerð, IMO 2020, en í henni felist að verulega verði dregið úr brennisteinsinnihaldi á svartolíu.  Nú megi hún mest vera 3,5% en frá og með 1. janúar 2020 megi hún innihalda að hámarki 0,5% brennistein.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.8.24 419,53 kr/kg
Þorskur, slægður 30.8.24 447,03 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.8.24 185,53 kr/kg
Ýsa, slægð 30.8.24 174,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.8.24 196,82 kr/kg
Ufsi, slægður 30.8.24 176,79 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 30.8.24 298,80 kr/kg
Litli karfi 28.8.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 29.8.24 152,55 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.8.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 524 kg
Steinbítur 143 kg
Ýsa 107 kg
Hlýri 87 kg
Ufsi 24 kg
Keila 19 kg
Karfi 16 kg
Langa 8 kg
Samtals 928 kg
31.8.24 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt
Ýsa 428 kg
Þorskur 378 kg
Steinbítur 117 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 927 kg
31.8.24 Indriði Kristins BA 751 Lína
Steinbítur 724 kg
Langa 490 kg
Þorskur 37 kg
Ýsa 33 kg
Skarkoli 11 kg
Karfi 3 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.301 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.8.24 419,53 kr/kg
Þorskur, slægður 30.8.24 447,03 kr/kg
Ýsa, óslægð 30.8.24 185,53 kr/kg
Ýsa, slægð 30.8.24 174,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 30.8.24 196,82 kr/kg
Ufsi, slægður 30.8.24 176,79 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 30.8.24 298,80 kr/kg
Litli karfi 28.8.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 29.8.24 152,55 kr/kg

Fleiri tegundir »

31.8.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 524 kg
Steinbítur 143 kg
Ýsa 107 kg
Hlýri 87 kg
Ufsi 24 kg
Keila 19 kg
Karfi 16 kg
Langa 8 kg
Samtals 928 kg
31.8.24 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt
Ýsa 428 kg
Þorskur 378 kg
Steinbítur 117 kg
Ufsi 2 kg
Karfi 2 kg
Samtals 927 kg
31.8.24 Indriði Kristins BA 751 Lína
Steinbítur 724 kg
Langa 490 kg
Þorskur 37 kg
Ýsa 33 kg
Skarkoli 11 kg
Karfi 3 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.301 kg

Skoða allar landanir »