Ákveður kvóta fyrir kolmunna og síld

Reglugerðirnar voru undirritaðar af ráðherra fyrr í dag.
Reglugerðirnar voru undirritaðar af ráðherra fyrr í dag. mbl/Arnþór Birkisson

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerðir um heildarkvóta Íslands í kolmunna og norsk-íslenskri síld fyrir árið 2019. Ekki er í reglugerðunum gert ráð fyrir heimild til handa íslenskum skipum til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld í færeyskri lögsögu árið 2019.

241 þúsund tonn af kolmunna

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Segir þar að aflaheimildir í kolmunna muni samtals nema 241 þúsund tonnum.

Ráðlögð heildarveiði kolmunna árið 2019, samkvæmt ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins, hafi lækkað um 18% frá árinu 2018 og nemi samtals 1.143.629 tonnum. Undanfarin ár hafi Færeyjar og Evrópusambandið aukið hlut sinn í kolmunnaveiðum um ríflega 47% og ákvörðun Íslands miðist við meðalhækkun annarra ríkja. Hlutur Íslands samkvæmt kolmunnasamningi frá 2005 var 16,23% en verður samkvæmt þessu 21,1%.

97.996 tonna kvóti fyrir norsk-íslenska síld

Ráðlögð heildarveiði á norsk-íslenskri síld árið 2019 er þá 588.562 tonn samkvæmt ákvörðun ráðherra, og er það 53% aukning frá 2018. Aukningin er sögð tilkomin þrátt fyrir lakari stöðu stofnsins og skýrist hún af nýrri langtímanýtingarstefnu sem felur í sér hærri veiðidánarstuðul og lægri viðbragðsmörk fyrir hrygningarstofninn. Tekið er fram að Ísland hafi varað við þessari breytingu á strandríkjafundi í haust.

Hlutur Íslands samkvæmt síldarsamningi frá 2007 hafi verið 14,51%, en á síðustu tveimur árum hafi Norðmenn aukið hlutdeild sína úr 61% í 70%. Ákvörðun Íslands um 97.996 tonna kvóta samsvari hlutfallslegri hækkun Norðmanna.

Áframhaldandi ofveiði áhyggjuefni

„Það er vissulega áhyggjuefni að ofveiði úr báðum þessum stofnum skuli halda áfram, sérstaklega úr síldarstofninum,“ er haft eftir ráðherra í tilkynningunni.

„Ísland hefur tekið mikið frumkvæði í því að reyna að þoka áfram málum varðandi samninga milli strandríkjanna í þessum stofnum og við munum halda því áfram. En meðan ekki næst samkomulag hljótum við að verja hlut Íslands eins og kostur er og við það miðast þessar kvótaákvarðanir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 474,47 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 365,15 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,16 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 1.241 kg
Keila 166 kg
Þorskur 115 kg
Skarkoli 8 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.540 kg
22.7.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Keila 575 kg
Karfi 477 kg
Þorskur 302 kg
Hlýri 140 kg
Ufsi 4 kg
Grálúða 3 kg
Samtals 1.501 kg
22.7.24 Djúpey BA 151 Grásleppunet
Grásleppa 745 kg
Samtals 745 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 474,47 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 365,15 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,16 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 1.241 kg
Keila 166 kg
Þorskur 115 kg
Skarkoli 8 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.540 kg
22.7.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Keila 575 kg
Karfi 477 kg
Þorskur 302 kg
Hlýri 140 kg
Ufsi 4 kg
Grálúða 3 kg
Samtals 1.501 kg
22.7.24 Djúpey BA 151 Grásleppunet
Grásleppa 745 kg
Samtals 745 kg

Skoða allar landanir »