Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki séu forsendur til að aðhafast frekar í athugun á því hvort að breyting hafi átt sér stað á yfirráðum í HB Granda í skilningi 17. gr. samkeppnislaga við kaup Brims hf., nú Útgerðarfélags Reykjavíkur, á eignarhlutum í félaginu fyrr á þessu ári.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá HB Granda, þar sem segir að stofnunin hafi látið málið niður falla, en það hefur verið í athugun frá 6. júlí á þessu ári. Tekið er fram að HB Granda hafi verið tilkynnt þessi ákvörðun með bréfi frá Samkeppniseftirlitinu, og efni þess kynnt á stjórnarfundi HB Granda fyrr í dag.
Greint var frá því í septembermánuði að eftirlitið hefði gert alvarlegar athugasemdir við viðskiptahætti Guðmundar Kristjánssonar, aðaleiganda Útgerðarfélags Reykjavíkur og forstjóra HB Granda.
Fréttablaðið sagðist þá hafa bréf Samkeppniseftirlitsins undir höndum og að þar kæmi fram, að ef frummat stofnunarinnar reyndist á rökum reist þá væri um að ræða „alvarleg brot“ á samkeppnislögum. Í bréfinu væri meðal annars fullyrt að leiða kynni til brota á samkeppnislögum að aðaleigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur væri jafnframt forstjóri HB Granda. Guðmundur tók við sem forstjóri HB Granda í júní eftir kaup í útgerðinni í gegnum ÚR í vor.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 21.11.24 | 564,58 kr/kg |
Þorskur, slægður | 21.11.24 | 656,67 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 21.11.24 | 374,69 kr/kg |
Ýsa, slægð | 21.11.24 | 341,33 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 21.11.24 | 315,48 kr/kg |
Ufsi, slægður | 21.11.24 | 337,30 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 21.11.24 | 393,63 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 15.11.24 | 103,00 kr/kg |
21.11.24 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Ýsa | 221 kg |
Þorskur | 190 kg |
Ufsi | 44 kg |
Steinbítur | 15 kg |
Keila | 7 kg |
Samtals | 477 kg |
21.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Ýsa | 180 kg |
Þorskur | 109 kg |
Keila | 29 kg |
Steinbítur | 17 kg |
Langa | 9 kg |
Ufsi | 5 kg |
Samtals | 349 kg |
21.11.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 4.050 kg |
Þorskur | 3.889 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 7.943 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 21.11.24 | 564,58 kr/kg |
Þorskur, slægður | 21.11.24 | 656,67 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 21.11.24 | 374,69 kr/kg |
Ýsa, slægð | 21.11.24 | 341,33 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 21.11.24 | 315,48 kr/kg |
Ufsi, slægður | 21.11.24 | 337,30 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 21.11.24 | 393,63 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 15.11.24 | 103,00 kr/kg |
21.11.24 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Ýsa | 221 kg |
Þorskur | 190 kg |
Ufsi | 44 kg |
Steinbítur | 15 kg |
Keila | 7 kg |
Samtals | 477 kg |
21.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Ýsa | 180 kg |
Þorskur | 109 kg |
Keila | 29 kg |
Steinbítur | 17 kg |
Langa | 9 kg |
Ufsi | 5 kg |
Samtals | 349 kg |
21.11.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 4.050 kg |
Þorskur | 3.889 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 7.943 kg |