Snjókrabbi gæti verið á leiðinni

Sindri Gíslason við mælingar á grjótkröbbum í árlegri vöktun í …
Sindri Gíslason við mælingar á grjótkröbbum í árlegri vöktun í Hvalfirði, en tegundin hefur breiðst hratt út.

Landnemum fjölgar með hverju árinu í lífríki hafsins og má nefna ýmsar tegundir svo sem krabba, möttuldýr og hveljur. Langt er í frá að allar þessar framandi tegundir séu velkomnar og sumar eru flokkaðar sem ágengar í lífríkinu.

Sindri Gíslason, líffræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Suðvesturlands, segir að því miður hafi takmarkaðar rannsóknir verið stundaðar á stofnum krabba við Ísland. Með landnámi grjótkrabbans sem fannst fyrst hér við land í Hvalfirði árið 2006 hafi þekking á kröbbum á grunnsævi stóraukist.

„Samhliða rannsóknum á grjótkrabbanum höfum við nefnilega aflað mikilla upplýsinga um algengustu innlendu krabbategundir á grunnsævi, bæði bogkrabba og trjónukrabba. Rannsóknir okkar á grjótkrabba hér við land eru einstakar því sjaldgæft er að fylgja landnámstegund svo vel eftir frá upphafi,“ segir Sindri.

Mikill þéttleiki grjótkrabba

Grjótkrabbinn hefur breiðst hratt út með strandlengjunni og finnst hann nú frá Faxaflóa norður með landinu og allt austur á Borgarfjörð eystri, að sögn Sindra. Annars staðar á Austfjörðum og við suðurströndina hefur hann enn ekki frétt af honum.

„Við höfum gert þéttleikamat á grjótkrabbanum hér suðvestanlands. Á kjörbúsvæði krabbans sem er mjúkur botn finnst hann í hvað mestum þéttleika sem þekktur er fyrir tegundina í heiminum, það er krabbi á hverja tvo fermetra. Krabbinn er orðinn algengur og ekki er óalgengt að sjá hann í köfun eða við snorkl víða um land,“ segir Sindri. Sem dæmi nefnir hann að við snorkl í Eyjafirði síðasta sumar hafi hann séð þónokkra grjótkrabba.

Veiðin á grjótkrabba síðustu fimm ár er um 28 tonn, en að mestu hefur verið um tilraunaveiðar að ræða. Á síðasta fiskveiðiári veiddust tæp sex tonn, en aflinn hefur dregist saman og er rúmlega 1,3 tonn af þremur bátum á þessu fiskveiðiári samkvæmt yfirliti á vef Fiskistofu.

„Ég geri fastlega ráð fyrir að snjókrabbi komi hingað innan fimm ára,“ segir Sindri. „Þessa tegund er víða að finna í Vestur-Atlantshafi og í Kyrrahafi þar sem krabbinn er mikið veiddur. Nú hefur snjókrabbi numið land norður við Svalbarða og menn eru hræddir um þau áhrif sem hann kann að hafa á lífríkið á þeim slóðum.

Stórir krabbar sem þurfa mikið

Snjókrabbinn er mikið lostæti og verðmæt tegund fyrir krabbaveiðimenn. Sömu sögu er að segja um kóngakrabba sem breiddist hratt út við Noreg og er mikið veiddur þar. Þessir krabbar eru stórir og þurfa mikið og þeir sem veiða aðrar tegundir eru uggandi vegna þeirra. Ég vona að kóngakrabbinn komi ekki hingað.“

Af fyrrnefndum tegundum er kóngakrabbinn langstærstur, síðan kemur snjókrabbi, en grjótkrabbi er minnstur þeirra þriggja. Þess má geta að kóngakrabbi kom í humartroll í Breiðamerkurdýpi í maí 2014 og er það eina þekkta dæmið um kóngakrabba á Íslandsmiðum. Líklegast er talið að honum hafi verið hent útbyrðis af skipi. Þá berast af og til fréttir af því að nornakrabbi hafi veiðst eða fundist og hefur þeim fréttum farið fjölgandi.

Innrás hefur áhrif

Innrás nýrra tegunda hefur áhrif á aðrar og þannig gæti vaxandi styrkur grjótkrabba haft áhrif á tegundir sem fyrir eru. „Einhverra hluta vegna virðist bogkrabba og trjónukrabba vera að fækka og færri eintök hafa komið í gildrur. Stofn trjónukrabba virðist vera í lægð suðvestanlands og það er talsvert annað en var fyrir um 30 árum þegar sjómenn sögðust varla geta lagt út net án þess að þau fylltust af trjónukrabba. Þetta er ekki staðan í dag og greinilega einhverjar sviptingar í gangi,“ segir Sindri.

Glærmöttull og griphvelja eru landnemar frá árunum 2007 og 2008 og hefur Náttúrustofa Suðvesturlands yfirumsjón með rannsóknum á báðum þessum tegundum við landið. Griphvelja hefur að öllum líkindum borist til landsins með kjölfestuvatni og er enn sem komið er sjaldgæf hér við land en líklegt er að hún geti orðið ágeng. Glærmöttull hefur að öllum líkindum borist til landsins sem ásæta á skipsskrokkum.

Í Kanada og Suður-Afríku er glærmöttull talinn ágeng tegund þar sem áhrif hans á skelfiskrækt eru neikvæð. Glærmöttullinn er í samkeppni við skelina um pláss og fæðu, hann er ásæta bæði á skel og ræktunarútbúnaði og hefur valdið miklu fjárhagslegu tjóni, sérstaklega í kræklingarækt, að því er fram kemur á heimasíðu Náttúrustofunnar.

„Þéttleiki glærmöttuls er orðinn talsvert mikill suðvestanlands og hann gæti með tímanum orðið ógn við bæði kræklingarækt og fiskeldi á landsvísu,“ segir Sindri

Fleiri tegundir komnar?

Hann segir að því miður sé lítið gert hérlendis til að hamla gegn því að tegundir sem þessar flytjist til landsins, eins og með kjölfestuvatni og á skipsskrokkum.

„Á þennan hátt gætu margir tegundahópar borist til landsins og orðið skæðir,“ segir Sindri. „Við höfum rökstuddan grun um að fleiri skyldar tegundir séu komnar hingað. Við erum að vinna úr sýnum sem við tókum í sumar á hafnarsvæðum á Suðvesturlandi og bendir allt til þess að við getum bætt við nokkrum nýjum þekktum ágengum tegundum við núverandi lista.

Griphvelja er enn sem komið er eina framandi tegundin hér við land sem er eitruð, en upphaflega kemur hún úr Kyrrahafinu þar sem eru nokkrir stofnar. Fyrstu niðurstöður erfðarannsóknar benda til þess að stofninn sem hingað er kominn sé frá Japan og hann er sá sem er langeitraðastur. Fólk í sjósundi ætti því einna helst að hafa augun hjá sér en ég reikna ekki með að griphveljan komi til með að hafa teljandi áhrif á lífríkið hér við land,“ segir Sindri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 474,47 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 365,15 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,16 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 1.241 kg
Keila 166 kg
Þorskur 115 kg
Skarkoli 8 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.540 kg
22.7.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Keila 575 kg
Karfi 477 kg
Þorskur 302 kg
Hlýri 140 kg
Ufsi 4 kg
Grálúða 3 kg
Samtals 1.501 kg
22.7.24 Djúpey BA 151 Grásleppunet
Grásleppa 745 kg
Samtals 745 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 474,47 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 365,15 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,16 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 1.241 kg
Keila 166 kg
Þorskur 115 kg
Skarkoli 8 kg
Ufsi 5 kg
Karfi 5 kg
Samtals 1.540 kg
22.7.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Keila 575 kg
Karfi 477 kg
Þorskur 302 kg
Hlýri 140 kg
Ufsi 4 kg
Grálúða 3 kg
Samtals 1.501 kg
22.7.24 Djúpey BA 151 Grásleppunet
Grásleppa 745 kg
Samtals 745 kg

Skoða allar landanir »