Níu laxar sem virðast komnir úr eldi og hafa veiðst í íslenskum ám hafa verið upprunagreindir og komu þeir allir frá tveimur kvíastæðum, annars vegar úr Laugardal í Tálknafirði og hins vegar frá Hringsdal Arnarfirði. Þannig er lax sem veiddist í Vatnsdalsá talinn kominn úr eldi í Laugardal og lax sem fékkst í Eyjafjarðará er talinn vera úr eldi við Hringsdal.
Frá þessu er greint á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar, sem hefur í samvinnu við MAST og Matís unnið að upprunagreiningunni. Notuð er svokölluð arfgerðagreining og eru 14 erfðamörk greind og borin sama við erfðamörk þeirra hænga sem notaðir voru við framleiðslu seiða 2015.
Á heimasíðu stofnunarinnar segir meðal annars: „Alls virðast hafa veiðst 12 eldisfiskar, þar af hafa 11 verið greindir en einn er enn í mælingu. Af þeim 11 sem hafa verið greindir er hægt að rekja níu með vissu, en eitt sýni þarf að endurkeyra með nýju erfðarsýni til að fá afgerandi staðfestingu. Einn fisk, sem veiddist í Breiðdalsá, þarf að skoða frekar og er hugsanlegt að hann hafi komið annars staðar frá. Þeir níu fiskar sem hefur verið hægt að rekja komu allir frá tveimur kvíastæðum, annars vegar úr Laugardal í Tálknafirði og hins vegar frá Hringsdal, Arnarfirði.
Tilkynnt hafa verið þrjú atvik sem stemma við þessar staðsetningar. Arnarlax tilkynnti atvik/strok í Hringsdal í Arnarfirði þann 21. febrúar sl. og tvö atvik í Laugardal í Tálknafirði, annað í febrúar og hitt í júlí á þessu ári. Svo virðist sem allir fiskarnir hafa komið úr tilkynntum strokum.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 21.11.24 | 564,58 kr/kg |
Þorskur, slægður | 21.11.24 | 656,67 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 21.11.24 | 374,69 kr/kg |
Ýsa, slægð | 21.11.24 | 341,33 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 21.11.24 | 315,48 kr/kg |
Ufsi, slægður | 21.11.24 | 337,30 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 21.11.24 | 393,63 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 15.11.24 | 103,00 kr/kg |
21.11.24 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Ýsa | 221 kg |
Þorskur | 190 kg |
Ufsi | 44 kg |
Steinbítur | 15 kg |
Keila | 7 kg |
Samtals | 477 kg |
21.11.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 16.627 kg |
Ufsi | 2.513 kg |
Þorskur | 2.203 kg |
Ýsa | 641 kg |
Samtals | 21.984 kg |
21.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Ýsa | 180 kg |
Þorskur | 109 kg |
Keila | 29 kg |
Steinbítur | 17 kg |
Langa | 9 kg |
Ufsi | 5 kg |
Samtals | 349 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 21.11.24 | 564,58 kr/kg |
Þorskur, slægður | 21.11.24 | 656,67 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 21.11.24 | 374,69 kr/kg |
Ýsa, slægð | 21.11.24 | 341,33 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 21.11.24 | 315,48 kr/kg |
Ufsi, slægður | 21.11.24 | 337,30 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 21.11.24 | 393,63 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 15.11.24 | 103,00 kr/kg |
21.11.24 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Ýsa | 221 kg |
Þorskur | 190 kg |
Ufsi | 44 kg |
Steinbítur | 15 kg |
Keila | 7 kg |
Samtals | 477 kg |
21.11.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 16.627 kg |
Ufsi | 2.513 kg |
Þorskur | 2.203 kg |
Ýsa | 641 kg |
Samtals | 21.984 kg |
21.11.24 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Ýsa | 180 kg |
Þorskur | 109 kg |
Keila | 29 kg |
Steinbítur | 17 kg |
Langa | 9 kg |
Ufsi | 5 kg |
Samtals | 349 kg |