„Útlitið nánast aldrei jafn dökkt og nú“

Bjarni Sæmundsson í loðnuleit. Enn hefur ekki mælst nægilega mikið …
Bjarni Sæmundsson í loðnuleit. Enn hefur ekki mælst nægilega mikið til að gefa út veiðikvóta. Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir

Fulltrúar fjögurra japanskra fyrirtækja segja það grafalvarlegt mál ef engin íslensk loðna kemur inn á markaðinn í ár. Í fyrra keyptu japönsk fyrirtæki tuttugu þúsund tonn af loðnu frá Íslandi en auk þess eru Japanar helstu kaupendur loðnuhrogna.

Frá þessu er greint á vef Síldarvinnslunnar, þar sem teknir eru tali þrír Japanar sem nú dvelja í Neskaupstað, en allir hafa þeir dvalið tímabundið á Íslandi á hverju ári síðustu áratugi til að kaupa fisk fyrir neytendamarkað í Japan.

Hiroaki Takahasi, sem hefur árlega dvalið á Íslandi í 34 ár, segir að þetta sé í fyrsta sinn sem hann komi til Íslands á vertíðartíma og útlit sé fyrir að það verði engin loðnuvertíð.

„Hver vertíð hefur sína sérstöðu. Stundum hafa vertíðir byrjað snemma og stundum seint. Stundum hefur gengið vel að finna loðnuna en stundum hefur það verið erfiðleikum bundið. Stundum hafa veiðarnar verið miklar og stundum höfum við fengið litlar vertíðir,“ segir hann.

„En ég viðurkenni að útlitið hefur nánast aldrei verið jafn dökkt og nú. Það er grafalvarlegt mál ef við fáum ekki íslenska loðnu inn á japanskan neytendamarkað því þá er hættan sú að neytendur beini sjónum sínum að öðrum vörum og erfitt verði að vinna markaðinn til baka.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg
22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg
22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg

Skoða allar landanir »