Samkomulagi náð við Færeyinga

Börkur NK að veiðum á kolmunnamiðum. Mynd úr safni.
Börkur NK að veiðum á kolmunnamiðum. Mynd úr safni. Ljósmynd/Helgi Freyr Ólason

Kristján Þór Júlíusson og Högni Hoydal, sjávarútvegsráðherrar Íslands og Færeyja, hafa náð samkomulagi um fiskveiðisamning á milli Íslands og Færeyja.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Felur samningurinn í sér endurnýjun á samningi frá 2018 sem veitir Íslandi aðgang að lögsögu Færeyja til að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld.

Samhliða fá Færeyjar aðgang að lögsögu Íslands fyrir sömu tegundir.

Ísland fær 1.300 tonn af makríl frá Færeyjum og Færeyjar fá 5.600 tonn af bolfiski og allt að 30 þúsund tonn af loðnu frá Íslandi, háð því að loðna finnist í veiðanlegu magni í lögsögu Íslands. Samkomulagið gildir fyrir árin 2019 og 2020.

Jafnframt sammæltust ráðherrarnir um að halda áfram vinnu að gerð rammasamnings um fiskveiðisamstarf þjóðanna og tilnefna hvor um sig sérfræðinga til að meta verðmæti aflaheimilda og aðgangs sem nýtist við gerð fiskveiðisamnings þjóðanna. Gert er ráð fyrir að þessari vinnu verði lokið um mitt ár 2020.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg
22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg
22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg

Skoða allar landanir »