Segir tækifæri í sjálfsiglandi skipum

Meðal þess sem kynnt verður á degi verkfræðinnar eru hugmyndir …
Meðal þess sem kynnt verður á degi verkfræðinnar eru hugmyndir um sjálfsiglandi skip sambærilegt því sem væntanlegt er frá Yara Birkeland á næsta ári. Mynd/Yara International ASA

„Norðmenn eru í mikilli forystu í þessu og þeir byrjuðu að pæla í þessu um 2015. Þeir eru með eitt skip í smíðum sem mun hefja siglingar um þetta leyti á næsta ári,“ segir Sæmundur E. Þorsteinsson, lektor við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, í samtali við mbl.is um sjálfsiglandi skip.

Erindi hans um þessa nýjung verður flutt á degi verkfræðinnar sem fer fram í dag.

Hann segir norska skipið, sem Yara Birkeland lætur smíða, vera ætlað til þess að sinna áburðarflutningum milli staða í Noregi.

„Hugsunin er sú að létta á vegakerfinu,“ segir Sæmundur og tekur fram að skipið verði að öllu leyti rafknúið. „Það verður að mér skilst algjörlega sjálfsiglandi og skynjar umhverfi sitt.“

Þá mun skipið sjálft forðast önnur skip og haga sér samkvæmt siglingareglum. Þó verður skipið í fjarskiptasambandi og er hægt að stjórna því frá landi, að sögn lektorsins. „Þannig að það er hægt að taka yfir stjórnina þótt það sé enginn maður um borð.“

Aukin hagkvæmni

„Við ættum að minnsta kosti að skoða þann möguleika mjög vel,“ svarar Sæmundur spurður hvort strandsiglingar sjálfstýrðra skipa hér á landi gætu dregið úr álagi á vegakerfinu.

„Stór hluti af rekstrarkostnaði skips eru laun áhafnar og eldsneyti,“ bætir hann við og bendir á að orkukostnaður við notkun rafmagnsknúins farartækis sé mun minni en þeirra sem nota eldsneyti. „Auk þess sem umhverfisáhrifin eru mun minni af því að knýja skipin með afli fossanna en díselolíu.“

Það gæti hentað að hafa ferjurnar frekar litlar og hægt yrði að haga flutningum eftir þörf í stað áætlunarsiglinga, að sögn Sæmundar.

Bæta gæði neysluvatns

„Við munum fara yfir það hvað Veitur hafa gert í framhaldinu af örveruatburðinum sem átti sér stað í janúar í fyrra og rannsóknir sem Veitur hafa sett af stað til þess að koma í veg fyrir slíka atburði,“ segir Hlín Benediktsdóttir, verkfræðingur hjá Veitum, í samtali við mbl.is um erindi sem hún mun flytja ásamt Sverri Guðmundssyni, verkfræðingi Veitna, á degi verkfræðinnar.

„Við erum með mælingar sem við höfum gert frá 2014 sem mæla þegar svona atburðir eru í aðsigi, að það komi mikil hláka þegar er frost og kemur mikil rigning og það verða snöggar leysingar. Eftir þennan atburð í fyrra þá höfum við sett af stað mikla vinnu til þess að koma í veg fyrir slíka atburði í framtíðinni,“ útskýrir Hlín.

Í fyrra kom upp tilfelli þar sem mældust gerlar í neysluvatni frá Heiðmörk í kjölfar mikillar hláku.

AFP

„Þetta eru aðgerðir sem geta hjálpað okkur við rekstur á vatninu og komið heilnæmasta vatninu til viðskiptavinanna og tryggt gæði vatnsins,“ segir Hlín.

„Við erum að setja fram lýsingartæki og auka dælingu á öðrum svæðum. Við getum líka skannað vatnsverndarsvæði betur og [viðhaft] meiri veðurvöktun, auk jarðvegshitamælinga,“ útskýrir hún og bendir á að auk þess að settur hefur verið af stað undirbúningur að því að fjárfesta í tæknibúnaði hafi einnig verið mikil fjárfesting í rannsóknum.

Þá hafa meðal annars háskólarnir, Orkuveitan og Veðurstofa Íslands komið að umræddum rannsóknum.

Dagur verkfræðinnar

Dagur verkfræðinnar er haldinn í fimmta sinn í dag á Hilton Nordica og hófst dagskrá klukkan eitt.

Skipuleggjendur segja markmið viðburðarins vera „að kynna verkfræðina, spennandi verkefni og störf á því sviði og ekki síst efla tengsl og samheldni meðal íslenskra verkfræðinga og tæknifræðinga“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.11.24 589,39 kr/kg
Þorskur, slægður 20.11.24 618,73 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.11.24 442,45 kr/kg
Ýsa, slægð 20.11.24 368,62 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.11.24 214,55 kr/kg
Ufsi, slægður 20.11.24 343,79 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 20.11.24 379,77 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 15.11.24 103,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.11.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Þorskur 9.182 kg
Skarkoli 582 kg
Sandkoli 40 kg
Samtals 9.804 kg
20.11.24 Sæli BA 333 Lína
Langa 923 kg
Þorskur 267 kg
Keila 56 kg
Ýsa 47 kg
Steinbítur 29 kg
Karfi 17 kg
Samtals 1.339 kg
20.11.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Þorskur 458 kg
Ýsa 285 kg
Steinbítur 229 kg
Langa 108 kg
Skarkoli 21 kg
Samtals 1.101 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.11.24 589,39 kr/kg
Þorskur, slægður 20.11.24 618,73 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.11.24 442,45 kr/kg
Ýsa, slægð 20.11.24 368,62 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.11.24 214,55 kr/kg
Ufsi, slægður 20.11.24 343,79 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 20.11.24 379,77 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 15.11.24 103,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.11.24 Egill ÍS 77 Dragnót
Þorskur 9.182 kg
Skarkoli 582 kg
Sandkoli 40 kg
Samtals 9.804 kg
20.11.24 Sæli BA 333 Lína
Langa 923 kg
Þorskur 267 kg
Keila 56 kg
Ýsa 47 kg
Steinbítur 29 kg
Karfi 17 kg
Samtals 1.339 kg
20.11.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Þorskur 458 kg
Ýsa 285 kg
Steinbítur 229 kg
Langa 108 kg
Skarkoli 21 kg
Samtals 1.101 kg

Skoða allar landanir »