Brestur í loðnu og blikur á lofti

Mikið hefur mætt á Þorsteini Sigurðssyni og samstarfsfólki hans í …
Mikið hefur mætt á Þorsteini Sigurðssyni og samstarfsfólki hans í vetur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Brestur í loðnuveiðum og blikur á lofti eru orð sem oft hafa verið notuð að undanförnu. Loðnan hefur breytt hegðan sinni síðustu ár og mörgum spurningum er ósvarað um umhverfisþætti, útbreiðslu, þróun stofnsins og göngur loðnunnar til hrygningar, sem að stærstum hluta hefur verið í Faxaflóa og Breiðafirði.

Einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög víða um land þurfa að endurskoða fjárhagsstöðuna og komið hefur fram að loðnubresturinn sé mikið högg fyrir þjóðarbúið. Þannig geti ríkið orðið af um fjórum milljörðum ef miðað sé við vertíð eins og var í fyrra sem þó var ekki meðal þeirra stóru, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgublaðinu í dag.

Mörg spjót hafa staðið á starfsmönnum Hafrannsóknastofnunar síðustu vikur, en þar stendur Þorsteinn Sigurðsson í brúnni á uppsjávarsviði. Hann segir að loðnan sem hrygnir fyrir Vesturlandi sé trúlega að mestu hrygnd, en hrygning fyrir norðan sé venjulega seinna á ferðinni. Þar virðist minna af loðnu ganga til hrygningar en síðustu tvö ár af fréttum að dæma. Fregnir hafi borist héðan og þaðan um loðnu, en Þorsteinn segir að það sé í samræmi við það sem menn hafi vitað og ekkert sem breyti fyrri ákvörðunum varðandi ráðgjöf um veiðar.

Mest af loðnunni hrygnir við þriggja ára aldur og drepst síðan að stórum hluta. Loðnubresturinn kom ekki með öllu á óvart því árgangurinn sem átti að bera uppi veiði vetrarins mældist lítill við mælingar þegar hann var mældur sem ungloðna í september 2017.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg
22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg
22.7.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.738 kg
Þorskur 873 kg
Steinbítur 217 kg
Skarkoli 101 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 7.932 kg

Skoða allar landanir »