Eldur um borð í fiskibáti á Breiðafirði

Þyrla og flugvél Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út.
Þyrla og flugvél Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst rétt fyrir sex í kvöld tilkynning um eld um borð í fiskibátnum Æsi. Þrír voru um borð í bátinum þegar eldurinn kom upp, en hann var þá staddur vestur af Flatey á Breiðafirði.

Þegar í stað var ákveðið að kalla út TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli skömmu síðar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Einnig  var TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, beðin um að halda að bátnum, varðskipið Týr og björgunarsveitir Landsbjargar á Snæfellsnesi.

Var flugvélin, sem var í löggæsluverkefni þegar útkallið barst, komin yfir bátinn klukkan  18:09 en þá voru mennirnir þrír komnir í flotgalla. Enginn reykur var þá sjáanlegur í bátnum, en hiti engu að síður greinanlegur með hitamyndavél flugvélarinnar.

Björgin, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, varðskipið Týr og TF-LIF eru nú á leið á vettvang auk þriggja harðbotna slöngubáta frá Landsbjörg. Eins er fiskibáturinn Hafey komin að bátnum og eru skipverjarnir þrír óhultir.

Áhöfnin á Hafey tók Æsi í tog á áttunda tímanum í kvöld og dregur hann nú áleiðis til Brjánslækjar.

Björgunarskipinu Björgu frá Rifi, varðskipinu Tý, flugvél Landhelgisgæslunnar og þyrlunni Líf var hins vegar snúið við.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.10.24 497,07 kr/kg
Þorskur, slægður 18.10.24 570,02 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.10.24 259,27 kr/kg
Ýsa, slægð 18.10.24 222,79 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.10.24 233,08 kr/kg
Ufsi, slægður 18.10.24 232,43 kr/kg
Djúpkarfi 17.10.24 124,11 kr/kg
Gullkarfi 18.10.24 160,45 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 16.10.24 127,54 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.10.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.964 kg
Þorskur 1.488 kg
Skarkoli 380 kg
Langlúra 177 kg
Sandkoli 73 kg
Skrápflúra 16 kg
Karfi 12 kg
Steinbítur 10 kg
Hlýri 10 kg
Þykkvalúra 7 kg
Samtals 9.137 kg
18.10.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 2.147 kg
Ýsa 463 kg
Hlýri 21 kg
Steinbítur 11 kg
Samtals 2.642 kg
18.10.24 Hafrafell SU 65 Lína
Ýsa 627 kg
Þorskur 495 kg
Keila 115 kg
Hlýri 6 kg
Steinbítur 4 kg
Karfi 2 kg
Samtals 1.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.10.24 497,07 kr/kg
Þorskur, slægður 18.10.24 570,02 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.10.24 259,27 kr/kg
Ýsa, slægð 18.10.24 222,79 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.10.24 233,08 kr/kg
Ufsi, slægður 18.10.24 232,43 kr/kg
Djúpkarfi 17.10.24 124,11 kr/kg
Gullkarfi 18.10.24 160,45 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 16.10.24 127,54 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.10.24 Bárður SH 81 Dragnót
Ýsa 6.964 kg
Þorskur 1.488 kg
Skarkoli 380 kg
Langlúra 177 kg
Sandkoli 73 kg
Skrápflúra 16 kg
Karfi 12 kg
Steinbítur 10 kg
Hlýri 10 kg
Þykkvalúra 7 kg
Samtals 9.137 kg
18.10.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 2.147 kg
Ýsa 463 kg
Hlýri 21 kg
Steinbítur 11 kg
Samtals 2.642 kg
18.10.24 Hafrafell SU 65 Lína
Ýsa 627 kg
Þorskur 495 kg
Keila 115 kg
Hlýri 6 kg
Steinbítur 4 kg
Karfi 2 kg
Samtals 1.249 kg

Skoða allar landanir »