Finna kókaín í ferskvatnsrækjum

Rækjur í rækjuvinnslu. Auk vímuefnanna fundust ólöglegar tegundir af skordýraeitri …
Rækjur í rækjuvinnslu. Auk vímuefnanna fundust ólöglegar tegundir af skordýraeitri og lyfjum í rækjunum.

Vísindamenn hafa fundið vímuefni á borð við kókaín og ketamín í ferskvatnsrækjum þegar þeir athuga hvort ýmis efni sé að finna í ám og vötnum. Þeir segja þessa uppgötvun koma á óvart, en greint er frá henni á vef BBC.

Segir þar að rannsakendur við King's College í Lundúnum, í samstarfi við Suffolk-háskóla, hafi athugað efnasamsetningar í ám og vötnum á fimmtán mismunandi stöðum í Suffolk-sýslu. Kókaín fannst í þeim öllum.

Nic Bury, prófessor við Suffolk-háskóla, segir í samtali við BBC að eftir eigi að athuga hvort þetta ástand sé bundið við Suffolk eða sé einnig raunin annars staðar.

„Heilbrigði umhverfisins hefur fengið mikla athygli almennings vegna áskorana sem tengjast loftslagsbreytingum og örplastmengun. Hins vegar er þörf á að athuga mun betur áhrif ósýnilegrar efnamengunar, svo sem vegna lyfja, á lífríkið.“

Auk vímuefnanna fundust ólöglegar tegundir af skordýraeitri og leifar af ýmsum lyfjum í rækjunum. Að sögn vísindamannanna hafa efnin þó líklega lítil áhrif á þær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »