Mervyn King heimsótti HB Granda

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, (t.v.) og Mervyn King um …
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, (t.v.) og Mervyn King um borð í Akurey RE.

Mervyn King, fyrrverandi bankastjóri Englandsbanka, heimsótti útgerðarfélagið HB Granda á dögunum. King mun vera hér á landi í heimsókn í boði Samtaka sparifjáreigenda og flutti hann erindi á þeirra vegum í Háskóla Íslands um hagstjórn á óvissutímum.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, tók á móti Mervyn og konu hans Barböru King á Norðurgarði, að því er fram kemur á vef HB Granda.

Bauð Guðmundur þeim um borð í Akurey RE, sem er einn nýrra ísfisktogara félagsins, auk þesss sem fiskvinnsla í landi var skoðuð. Mun það hafa vakið athygli King hversu vel félagið sé búið hátæknibúnaði bæði til veiða og vinnslu.

Guðmundur kynnti því næst fyrir gestum rekstur HB Granda, umhverfi íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja, fiskveiðikerfið og sögu þess hvernig Íslendingar hafa nýtt auðlindir sjávar. Að því búnu var boðið til hádegisverðar þar sem rædd var sjálfbær nýting auðlinda, alþjóðleg efnahagsmál og þróun fjármálakerfisins, að því er segir á vef útgerðarinnar.

Mervyn King er einn af virtustu hagfræðingum samtímans. Hann varð aðalhagfræðingur Englandsbanka 1991 og bankastjóri frá 2003 til 2013. Hann var því á vaktinni þegar fjármálakerfi heimsins riðaði til falls veturinn 2008-2009 og var einn áhrifamesti seðlabankastjóri Evrópu þegar glímt var við afleiðingar kreppunnar. Frá því hann hætti sem bankastjóri hefur hann verið eftirsóttur fyrirlesari um allan heim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »