Notkun svartolíu bönnuð í landhelgi Íslands

Skemmtiferðaskip í Sundahöfn. Reglugerðarbreytingarnar kveða á um að leyfilegt brennisteinsinnihald …
Skemmtiferðaskip í Sundahöfn. Reglugerðarbreytingarnar kveða á um að leyfilegt brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti sem notað er innan landhelgi Íslands og innsævis verður lækkað úr 3,5% niður í 0,1%. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar nú eftir umsögnum um drög að reglugerðarbreytingu sem bannar notkun svartolíu innan íslenskrar landhelgi. Auk tilætlaðs ávinnings fyrir loftslagið er breytingunni ætlað að stuðla að auknum loftgæðum við strendur Íslands og hvetja til notkunar á loftslagsvænni orkugjöfum á skipum, að því er segir í frétt á vef Stjórnarráðsins.

Fyrirhugað bann er m.a. liður í að framfylgja aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, sem og stjórnarsáttmála, en frestur til að skila umsögnum um drögin er til 7. júní nk.

„Svartolía“ er samheiti yfir þungar og seigar olíur sem geta innihaldið hátt hlutfall brennisteins og er svartolía m.a. notuð í skipasiglingum. Hún mengar meira en annað eldsneyti og losar mikið af sóti út í andrúmsloftið er hún brennur. 

Reglugerðarbreytingarnar kveða á um að leyfilegt brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti sem notað er innan landhelgi Íslands og innsævis verður lækkað úr 3,5% niður í 0,1% þann 1. janúar 2020.

Sama dag eiga að taka gildi breytingar innan mengunarlögsögunnar, en utan landhelginnar lækkar leyfilegt brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti niður í 0,5%. Þess má geta að brennisteinsinnihald þeirrar svartolíu sem var markaðssett hér á landi árið 2017 var á bilinu 0,64-1,94%, en meðaltalið á heimsvísu, samkvæmt gögnum frá Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO), var 2,59%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.8.24 493,08 kr/kg
Þorskur, slægður 14.8.24 419,19 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.8.24 267,34 kr/kg
Ýsa, slægð 14.8.24 262,54 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.8.24 173,57 kr/kg
Ufsi, slægður 14.8.24 195,10 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 14.8.24 215,24 kr/kg
Litli karfi 6.8.24 11,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 14.8.24 188,80 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.8.24 Hulda GK 17 Lína
Þorskur 2.858 kg
Ýsa 1.760 kg
Steinbítur 213 kg
Hlýri 11 kg
Keila 2 kg
Samtals 4.844 kg
14.8.24 Valur ST 30 Handfæri
Þorskur 1.121 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 1.147 kg
14.8.24 Benni ST 5 Landbeitt lína
Ýsa 3.613 kg
Þorskur 1.680 kg
Steinbítur 197 kg
Karfi 13 kg
Keila 10 kg
Ufsi 8 kg
Langa 8 kg
Hlýri 7 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 5.542 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.8.24 493,08 kr/kg
Þorskur, slægður 14.8.24 419,19 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.8.24 267,34 kr/kg
Ýsa, slægð 14.8.24 262,54 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.8.24 173,57 kr/kg
Ufsi, slægður 14.8.24 195,10 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 14.8.24 215,24 kr/kg
Litli karfi 6.8.24 11,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 14.8.24 188,80 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.8.24 Hulda GK 17 Lína
Þorskur 2.858 kg
Ýsa 1.760 kg
Steinbítur 213 kg
Hlýri 11 kg
Keila 2 kg
Samtals 4.844 kg
14.8.24 Valur ST 30 Handfæri
Þorskur 1.121 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 1.147 kg
14.8.24 Benni ST 5 Landbeitt lína
Ýsa 3.613 kg
Þorskur 1.680 kg
Steinbítur 197 kg
Karfi 13 kg
Keila 10 kg
Ufsi 8 kg
Langa 8 kg
Hlýri 7 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 5.542 kg

Skoða allar landanir »