Nóg var um að vera á bryggjunni í Ólafsvík í gær og á föstudag, þegar fram fór árlegt mót Sjóstangaveiðifélags Snæfellsness. Tæplega þrjátíu keppendur voru skráðir til leiks og héldu til veiða frá bryggjunni í Ólafsvík klukkan sex á föstudagsmorgun.
Mótið er hluti af Íslandsmótaröð Landssambands sjóstangaveiðifélaga, þar sem samtals þrír aflamestu dagar hvers keppanda telja til ákvörðunar um Íslandsmeistaratitilinn.
Helgi Hjelm formaður félagsins, Þröstur Albertsson skipstjóri á Stefaníu, sem var aflahæsti skipstjórinn, Elín Snorradóttir, sem var aflahæst kvenna, Pétur Sigurðsson, aflahæstur karla, og Gunnar Jónsson, ritari félagsins.
mbl.is/Alfons Finnsson
Nýliði ársins 52 ára
Helgi Hjelm, formaður félagsins, segir að löng hefð sé fyrir mótahaldinu þó dregið hafi úr þátttöku á síðari árum. „Það hefur verið voðalega lítil endurnýjun. Það er ekki langt síðan ég tók þátt í fyrsta sinn og var við það tilefni valinn nýliði ársins, þá orðinn 52 ára,“ bætir hann við og hlær við.
„Þetta er auðvitað happa og glappa hvernig dregst á báta og skipstjóra,“ segir Helgi, spurður hvað þurfi til sigurs í keppnum á borð við þessa.
„En margir hverjir eru einfaldlega virkilega klárir og góðir veiðimenn og skera sig þannig úr. Menn sem eru búnir að vera sjómenn alla ævi kannski. Svo er þetta ansi mikil vinna, því í raun þarftu að standa í átta tíma.“
Svo illa vildi til að einn bátur bilaði á meðan keppninni stóð. Var þá auðsótt mál að fá drátt til hafnar.
mbl.is/Alfons Finnsson