Kjörstjórn Sjómannafélags Íslands og fulltrúar framboðs B-lista til stjórnar vinna nú að farsælli lausn á deilu sem þeirra ríkir á milli um gildi framboðsins og munu ekki tjá sig fyrr en niðurstaða kemst í málið.
Framboðslista B-listans, sem leiddur er af Heiðveigu Maríu Einarsdóttur, var hafnað af kjörstjórn og honum gefinn frestur til 10. júní til lagfæringar og söfnunar 100 nýrra undirskrifta.
Heiðveig María tók ekki í mál að safna meðmælum að nýju og stóð til að kjörstjórn tæki ákvörðun um gildi framboðsins á fundi sínum í dag. Þá óskaði Heiðveig María eftir því að fulltrúi B-listans fengi að funda með kjörstjórn og gekk það eftir í dag.
„Erum að vinna að niðurstöðu“
Þegar blaðamaður mbl.is heyrði í Benóný Harðarsyni, starfsmanni VM og fulltrúa í kjörstjórn sem hlutlaus aðili, nú síðdegis fengust þær upplýsingar að aðilar hefði komist að samkomulagi um fjölmiðlabann þar til ákvörðun hefði verið tekin. Sigurður Þórður Jónsson, varaformannsefni B-listans, staðfesti í samtali við mbl.is að aðilar hefðu ákveðið að tjá sig ekki nánar fyrr en sátt hefði verið náð. „Við erum að vinna að niðurstöðu og hún er ekki komin.“
Gerði Sigurður Þórður ráð fyrir því að greitt yrði úr málinu á morgun.
Listi Heiðveigar býður nú öðru sinni fram til stjórnar Sjómannafélagsins, eftir að boðað var til nýrra kosninga í kjölfar niðurstöðu félagsdóms fyrr á árinu. Heiðveig hafði upphaflega á síðasta ári boðið sig fram í félaginu, en það framboð hafði verið dæmt ógilt og henni vísað úr félaginu. Félagsdómur dæmdi henni hins vegar í hag og var í kjölfarið boðað aftur til kosninga.