Fylgjast þurfi vel með þróun mála

Hafís norðvestur af landinu síðasta sumar.
Hafís norðvestur af landinu síðasta sumar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vindar og straumar munu saman bera hafísinn við Ísland enn lengra austur á bóginn nú um helgina. Líklegt er að ísinn færist hratt nær landi og austur úti fyrir Norðurlandi.

Þetta segir Ingibjörg Jóns­dótt­ir, land­fræðing­ur og dós­ent við Jarðvís­inda­stofn­un Há­skóla Íslands, og bætir við að fylgjast þurfi vel með þróun mála þar sem hafís og borgarísjakar geti verið varasamir sjófarendum.

Það hjálpar vissulega að ísinn verður þarna kominn í hlýrri sjó, og mun bráðna frekar hratt, en spangir og stakir jakar geta vel farið inn á siglingaleiðir og verið til ama og skapað hættu í einhverja daga, einkum ef sjófarendur reikna ekki með ísnum,“ segir hún.

Frá hafískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar í fyrra.
Frá hafískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar í fyrra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rétt samspil ísmagns, hafstrauma og vinda

Útbreiðsla hafíss undan norðvesturströnd landsins er ekki svo óvanaleg að sögn Ingibjargar.

„Ís kom til dæmis nærri landi í júní í fyrra - og þetta gerist alltaf af og til þegar rétt samspil myndast á milli ísmagns, hafstrauma og vinda. Það er samt talsvert þéttari hafís við Austur Grænland í ár en í fyrra og hann nær auk þess sunnar, en það skal tekið fram að það eru alltaf talsverðar sveiflur á milli ára,“ segir hún.

Áhugavert verði að sjá hvernig þróunin verði um og eftir helgina. Undanfarnar vikur hafi verið nokkuð eindregnar norðanáttir, sem hjálpað hafi ísrekinu suður á bóginn í Austur-Grænlandsstraumnum.

„Á allra síðustu dögum hafa veðurskilyrði verið þannig á Grænlandssundi að ísinn hefur náð að breiðast til austurs, og nú um helgina þegar vindur snýr til suðvesturs munu vindar og straumar hjálpast að við að bera ísinn lengra austur á bóginn.“

Bráðnun Grænlandsjökuls geti haft áhrif

Ingibjörg bendir á að hlutfall fjölærs hafíss í Norður-Íshafi, það er ís sem er meira en eins árs gamall, hafi lækkað mjög mikið síðustu ár.

„Þetta veikir ísþekjuna í heild, því eldri ísinn er almennt þykkari, og einnig hefur útbreiðsla hafíss almennt minnkað á norðurhveli vegna hlýnunar.“

Aukin bráðnun Grænlandsjökuls geti hins vegar haft ýmis mótverkandi áhrif, til dæmis með því að auka ferskvatnsstreymi til sjávar, sem síðan geti valdið auknum hafís á ákveðnum slóðum og tímabilum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »