Fyrsti hnúðlax sumarsins kominn á land

Hnúðlaxinn sem veiddist í Ölfusá.
Hnúðlaxinn sem veiddist í Ölfusá.

Fyrsti hnúðlax sumarsins hefur veiðst í Ölfusá, fyrir landi Hrauns í Ölfusi. Laxinn var 2,4 kg hrygna, sem var vel haldin eftir dvöl sína í sjó, að því er fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar. 

Segir þar að í kjölfar vaxandi gengdar hnúðlaxa í íslenskar ár árið 2017, þegar um sjötíu hnúðlaxar veiddust í ám víðsvegar um landið, megi búast við að talsvert margir hnúðlaxar komi til með að veiðast í sumar.

„Lífsferill hnúðlaxa er stuttur. Þeir hrygna seinni hluta sumars og snemma hausts, jafnan fyrr en okkar laxfiskar. Hrognin klekjast út að vori og ganga til sjávar aðeins nokkurra vikna gömul. Þannig eru í raun aðskildir stofnar í árum með jafna tölu í ártali og oddatölu svo ekki verður blöndun á milli þeirra,“ segir á vef stofnunarinnar.

Drepast að lokinni hrygningu

„Árgangurinn á oddatölu ári er jafnan stærri. Hnúðlaxar drepast allir að lokinni hrygningu og því verður stundum vart við úthrygnda fiska síðsumars.“

Fyrsti hnúðlaxinn veiddist hér á landi 1961 og hefur þeirra orðið vart í litlum mæli flest ár síðan sem villufisk úr sleppingum. Smám saman hefur hnúðlax náð að dreifa sér og hefur myndað stofna í ám í Rússlandi og norðurhluta Noregs.

Hafrannsóknastofnun safnar upplýsing um veidda hnúðlaxa. Mikilvægt er að veiðimenn sem veiða hnúðlaxa skrái þá í veiðibækur og komi upplýsingum um þá til Hafrannsóknastofnunar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,71 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,25 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »