Sáu lekann fyrir

Orlik hefur legið óhreyfður í Njarðvíkurhöfn í fimm ár.
Orlik hefur legið óhreyfður í Njarðvíkurhöfn í fimm ár. Ljósmynd/Hilmar Bragi

Þetta sýnir að mat okkar á ástandi skipsins var hárrétt og hefði ekki mátt bíða lengur,“ segir Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafna. Orlik, rússneskur togari í Njarðvíkurhöfn, var hætt kominn í nótt er gat kom á hann og sjór flæddi inn.

„Við tókum eftir því fyrir um tíu dögum að ryðgöt voru í gömlu sjólínunni og gerðum strax ráð fyrir að þetta væri ekki eini staðurinn,“ segir Halldór. Ljóst væri að rífa þyrfti skipið sem fyrst áður en það sykki.

Halldór segir því að óskað hafi verið eftir neyðarfundi með Umhverfisstofnun, þar sem sérstaka heimild hennar þarf til að rífa öll skip yfir 500 brúttótonn, en umræddur togari er 1.800 brúttótonn. Að undangegnum fundi með fulltrúum Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja hafi heimild fengist síðasta föstudag til að rífa skipið í Njarðvíkurslippi og stendur til að gera það sem fyrst.

Það hafi því reynst ágætisstaðfesting á mati hafnaryfirvalda þegar skipið tók að leka í gærkvöldi. Sigurður Stefánsson hjá Köfunarþjónustu Sigurðar kom fyrstur auga á lekann um klukkan tíu í gærkvöldi. „Ég sá bara úr fjarska hvað hann hallaði mikið, og stökk um borð,“ segir Sigurður, en hann sinnir eftirliti með skipinu fyrir hönd eigandans, Hringrásar.

Mikill sjór reyndist í vélarrúmi skipsins og hóaði Sigurður saman mannskap, aðallega eigin starfsmönnum, til að dæla úr skipinu. Undir morgun tókst að staðsetja gatið og fylla upp í og er nú unnið að því að hreinsa þann sjó sem eftir er, og koma stöðugleika á skipið.

Þetta er í annað sinn sem Sigurður bjargar skipinu því svipað atvik kom upp fyrir tveimur árum. Þá stóð einnig til að rífa skipið en ekkert gerðist. Eftir að Umhverfisstofnun veitti leyfi sitt nú, ættu hlutirnir þó að ganga hraðar fyrir sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.1.25 588,14 kr/kg
Þorskur, slægður 28.1.25 648,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.1.25 375,72 kr/kg
Ýsa, slægð 28.1.25 326,38 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.1.25 230,05 kr/kg
Ufsi, slægður 28.1.25 293,97 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 28.1.25 231,27 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.542 kg
Ýsa 4.157 kg
Steinbítur 2.243 kg
Langa 84 kg
Hlýri 33 kg
Keila 11 kg
Karfi 7 kg
Samtals 16.077 kg
28.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 11.122 kg
Ýsa 1.009 kg
Steinbítur 139 kg
Karfi 58 kg
Langa 25 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 12.356 kg
28.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.081 kg
Þorskur 861 kg
Steinbítur 796 kg
Karfi 7 kg
Keila 2 kg
Samtals 2.747 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.1.25 588,14 kr/kg
Þorskur, slægður 28.1.25 648,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.1.25 375,72 kr/kg
Ýsa, slægð 28.1.25 326,38 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.1.25 230,05 kr/kg
Ufsi, slægður 28.1.25 293,97 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 28.1.25 231,27 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.542 kg
Ýsa 4.157 kg
Steinbítur 2.243 kg
Langa 84 kg
Hlýri 33 kg
Keila 11 kg
Karfi 7 kg
Samtals 16.077 kg
28.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 11.122 kg
Ýsa 1.009 kg
Steinbítur 139 kg
Karfi 58 kg
Langa 25 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 12.356 kg
28.1.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 1.081 kg
Þorskur 861 kg
Steinbítur 796 kg
Karfi 7 kg
Keila 2 kg
Samtals 2.747 kg

Skoða allar landanir »