Reiðubúinn að beita Ísland þvingunum

Formaður fiskveiðinefndar Evrópuþingsins segist reiðubúinn að krefjast þess að framkvæmdastjórn …
Formaður fiskveiðinefndar Evrópuþingsins segist reiðubúinn að krefjast þess að framkvæmdastjórn ESB beiti Íslendinga refsiaðgerðum vegna makrílveiða. mbl.is/Árni Sæberg

„Ég mun funda með framkvæmdastjórn Evrópusambandsins 4. september til þess að ræða aðgerðir. Við viljum ekki endurtaka þorskastríðin. Við viljum leita leiða til samstarfs,“ hefur Inews eftir Chris Davies, formann fiskveiðinefndar Evrópuþingsins, í tengslum við makrílveiðar Íslendinga og Grænlendinga.

Hins vegar segist hann ekki hræddur við að beita Íslendinga hörku. „Við munum krefjast þvingunaraðgerða til þess að varðveita hagsmuni okkar ef þörf krefur. Þetta er á dagskrá.“

Davies, sem er þingmaður á Evrópuþingi fyrir Frjálslynda demókkrata í Bretlandi, hefur ekki sparað stóru orðin um veiðar Íslendinga og sagði í vikunni í heimsókn á Hjaltlandseyjum að Íslendingar séu „gráðugir og óábyrgir.“

Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar gerðu milli sín samning um makrílveiðar árið 2014. Samkvæmt makrílsamningsins er gert ráð fyrir að Ísland, Grænland og Rússland fái 15,6% af heildarkvóta á makríl sem fastsettur er af þeim þrem aðilum sem eiga aðild að samningum.

Íslendingar, Grænlendingar og Rússar eiga ekki aðild að umræddum samningi og gefa þessi ríki því út einhliða kvóta á makríl.

Grænlendingar ósáttir

„Frá sjónarhóli Grænlands er það gremjulegt að þessir þrír aðilar ákváðu að framlengja makrílsamningnum án aðkomu Grænlands,“ segir Jákup Emil Hansen, fulltrúi sjávarútvegs-, veiði- og landbúnaðarráðuneytis Grænlands, í samtali við Sermitsiaq um ummæli Davies.

„Þar sem aðeins 15,6% [af heildarkvóta] er ætlaður Grænlandi, Íslandi og Rússlandi mun vera erfitt að ná samningi sem nær til allra aðila,“ segir Hansen.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,68 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 399,73 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,79 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Bobby 8 ÍS 368 Sjóstöng
Þorskur 104 kg
Steinbítur 18 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 125 kg
23.7.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 177 kg
Ýsa 14 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 197 kg
23.7.24 Bobby 7 ÍS 367 Sjóstöng
Þorskur 99 kg
Samtals 99 kg
23.7.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 188 kg
Samtals 188 kg
23.7.24 Bobby 5 ÍS 365 Sjóstöng
Þorskur 90 kg
Samtals 90 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,68 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 399,73 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,79 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Bobby 8 ÍS 368 Sjóstöng
Þorskur 104 kg
Steinbítur 18 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 125 kg
23.7.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 177 kg
Ýsa 14 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 197 kg
23.7.24 Bobby 7 ÍS 367 Sjóstöng
Þorskur 99 kg
Samtals 99 kg
23.7.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 188 kg
Samtals 188 kg
23.7.24 Bobby 5 ÍS 365 Sjóstöng
Þorskur 90 kg
Samtals 90 kg

Skoða allar landanir »