Óréttmætt og óboðlegt

Fullur poki af makríl í veiðiferð togarans Vigra.
Fullur poki af makríl í veiðiferð togarans Vigra. mbl.is/Árni Sæberg

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra telur ólíklegt að fiskveiðinefnd Evrópuþingsins grípi til viðskiptaþvingana gegn Íslandi og Grænlandi vegna makrílveiða. Hann segir það ekki í höndum einstakra þingmanna Evrópuþingsins að hóta slíku.

Nær lagi væri að Noregur, Færeyjar og Evrópusambandið breyttu um aðferðir og byðu Íslendingum að taka þátt í ákvörðunum um úthlutun. „Það er með öllu óréttmætt og ég læt ekki bjóða okkur Íslendingum það að gerð sé krafa á eitt ríki að draga einhliða úr veiðum á sameiginlegum veiðistofni,“ segir Kristján í umfjöllun um makrílveiðarnar í Morgunblaðinu í dag.

Chris Davies, formaður fiskveiðinefndar Evrópuþingsins, segist vonast til að hitta fulltrúa íslenskra stjórnvalda áður en fiskveiðinefndin ræðir mögulegar viðskiptaþvinganir.

Hann var spurður af hverju hótanir um viðskiptaþvinganir beindust eingöngu að Íslendingum og Grænlendingum en ekki Rússum: „Þótt Ísland sé sjálfstætt strandríki er það einnig aðili að EES og sannast sagna myndi ég vonast eftir betra og nánara sambandi milli Evrópusambandsins og Íslands en vænta mætti við Rússland. Mér er sagt að Ísland selji fisk til Rússlands á meðan ESB heldur uppi refsiaðgerðum til að mótmæla ólögmætri innlimun á hluta af öðru landi. Það er auðvitað Íslands að móta sína stefnu og að líkindum mun það selja viðbótarmakrílinn sem áætlað er að veiða með sama hætti.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,61 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,44 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.7.24 471,61 kr/kg
Þorskur, slægður 22.7.24 396,54 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.7.24 366,44 kr/kg
Ýsa, slægð 22.7.24 235,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.7.24 246,94 kr/kg
Ufsi, slægður 22.7.24 223,45 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.403 kg
Langa 535 kg
Ýsa 442 kg
Keila 336 kg
Steinbítur 155 kg
Karfi 109 kg
Hlýri 62 kg
Samtals 7.042 kg
22.7.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 3.160 kg
Þorskur 1.817 kg
Skarkoli 867 kg
Skrápflúra 307 kg
Sandkoli 48 kg
Steinbítur 31 kg
Þykkvalúra 9 kg
Karfi 6 kg
Ufsi 5 kg
Langlúra 3 kg
Samtals 6.253 kg

Skoða allar landanir »