Mikill vöxtur í fiskeldi á næstu árum

Mestallt fiskeldi hér á landi er annars vegar á Vestfjörðum …
Mestallt fiskeldi hér á landi er annars vegar á Vestfjörðum og hins vegar á Austfjörðum og skiptist tiltölulega jafnt milli þessara tveggja landsvæða. mbl.is/Helgi Bjarnason

Útlit er fyrir að fiskeldi tvöfaldist á næstu tveimur árum. Útflutningsverðmæti fiskeldis gæti orðið um 40 milljarðar árið 2021 eða sem nemur hátt í 3% af heildarútflutningi. Líklegt er að mikill vöxtur haldi áfram í einhver ár eftir 2021.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. 

Þar segir að fiskeldi hafi aukist mikið á undanförnum árum og verði vöxtur á næstu árum, einkum í laxeldi, jafnmikill og útlit sé fyrir muni hann hafa teljandi áhrif í þjóðhagslegu samhengi. Það sem af er ári er vöxtur í útflutningsverðmæti milli ára um 60%. Útflutningsverðmæti fiskeldis verður líklega hátt í 20 ma.kr í ár eða sem nemur ríflega 1% af heildarútflutningi. Á þessu ári hafa samanlagðar framleiðsluheimildir í fiskeldi nær tvöfaldast og eru nú um 85 þús. tonn á ári miðað við útgefin starfsleyfi Umhverfisstofnunar. Það tekur rekstraraðila um tvö ár að komast í fulla framleiðslugetu, að því er ráðuneytið greinir frá.

Grafík/Stjórnarráðið

Mestallt fiskeldi hér á landi er annars vegar á Vestfjörðum og hins vegar á Austfjörðum og skiptist tiltölulega jafnt milli þessara tveggja landsvæða.

Meðfylgjandi mynd sýnir spá um þróun í fiskeldi á næstu árum. Gangi áform eftir eru líkur á að samanlögð framleiðsla tvöfaldist til ársins 2021. Miðað við óbreytt afurðaverð þýðir þetta að útflutningsverðmæti fiskeldis gæti orðið um 40 ma.kr. árið 2021. Það nemur hátt í 3% af heildarútflutningi og slagar upp í verðmæti alls uppsjávarfisks í fyrra. Spáin er vitanlega háð óvissu um gang mála hjá einstökum framleiðendum.

Miðað við þær starfsleyfisumsóknir sem eru til skoðunar mun vöxtur fiskeldis líklega halda áfram eftir árið 2021. Það er þó takmarkað hversu mikinn fisk er hægt að framleiða í einstökum fjörðum og víða eru samanlagðar heimildir að nálgast þolmörk fjarðanna. Þrátt fyrir það er ekki útilokað að framleiðsluverðmætið geti aukist um nokkra tugi milljarða til viðbótar á árunum eftir 2021.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.2.25 623,92 kr/kg
Þorskur, slægður 9.2.25 790,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.2.25 455,61 kr/kg
Ýsa, slægð 9.2.25 411,58 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.2.25 245,09 kr/kg
Ufsi, slægður 7.2.25 303,57 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 9.2.25 380,63 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót
Þorskur 1.528 kg
Skarkoli 1.359 kg
Sandkoli 735 kg
Steinbítur 105 kg
Grásleppa 30 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 3.782 kg
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 75 kg
Steinbítur 47 kg
Ýsa 31 kg
Þorskur 28 kg
Samtals 181 kg
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 460 kg
Langa 172 kg
Ýsa 93 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 7 kg
Samtals 775 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.2.25 623,92 kr/kg
Þorskur, slægður 9.2.25 790,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.2.25 455,61 kr/kg
Ýsa, slægð 9.2.25 411,58 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.2.25 245,09 kr/kg
Ufsi, slægður 7.2.25 303,57 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 9.2.25 380,63 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót
Þorskur 1.528 kg
Skarkoli 1.359 kg
Sandkoli 735 kg
Steinbítur 105 kg
Grásleppa 30 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 3.782 kg
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 75 kg
Steinbítur 47 kg
Ýsa 31 kg
Þorskur 28 kg
Samtals 181 kg
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 460 kg
Langa 172 kg
Ýsa 93 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 7 kg
Samtals 775 kg

Skoða allar landanir »