Gert út á gæðin frá N-Noregi

Árni, Sigurbjörn og Agnes í jómfrúarsiglingu MS Brims.
Árni, Sigurbjörn og Agnes í jómfrúarsiglingu MS Brims. Ljósmynd/Aðsend

Íslendingar með sterk tengsl við Húsavík standa í stafni í norska ferðaþjónustufyrirtækinu Brim Explorer í Tromsø. Fyrir rúmri viku tók fyrirtækið í notkun nýjan umhverfisvænan bát, MS Brim, sem gerður verður út til að fylgjast með norðurljósum og hvölum. Fyrst í stað er stefnan tekin á svæðið úti fyrir Tromsø, en á næsta ári bætist nýtt skip við og þá einnig ferðir frá Svalbarða og Lofoten.

Frumherjar í hvalaskoðun

Agnes Árnadóttir frá Húsavík er framkvæmdastjóri Brim Explorer og annar stofnenda fyrirtækisins fyrir hálfu öðru ári. Faðir hennar er Árni Sigurbjarnarson, en hann og Hörður bróðir hans voru frumherjar í hvalaskoðun hér við land og stofnuðu Norðursiglingu á Húsavík 1995.

Ljósmynd/Aðsend

Agnes segir að það hafi verið dýrmætt að hafa föður sinn og afa með um borð er nýju skipi var siglt frá Álasundi norður til Tromsø. „Afi minn, Sigurbjörn Sörensson, er gamall sjómaður, sem fylgdi Norðursiglingu þétt frá upphafi. Þrátt fyrir að hann sé orðinn 89 ára lét hann sig ekki muna um að vera með okkur í fyrstu siglingunni í síðustu viku,“ segir Agnes.

MS Brim er tvíbytna, 24 metra langt skip og 11 metrar á breidd. Það tekur 146 farþega í dagsferðum og eru tveir stórir salir um borð, báðir bjóða upp á mikið útsýni. Brúin er á palli eða þriðja þilfarinu með útsýni til allra átta. Skipið er ýmist knúið með rafoku eða olíu og eru tveir rafhlöðupakkar, samtals 800 kílóvött. Agnes segir að hægt sé að keyra í um 10 tíma á einni hleðslu þegar siglt sé á 8-9 sjómílum, sem sé algengur hraði í skoðunarferðum. Þegar nauðsyn sé til að auka hraðann eða fara lengri vegalengdir sé notast við dísil.

Hljóðlátur og umhverfisvænn

Dýrmætt sé að geta verið með hljóðlátan og umhverfisvænan bát í skoðunarferðum til að auka upplifun ferðamanna, hvort sem markmiðið sé að skoða norðurljós eða hvali. Þar hafi þau meðal annars notið góðs af reynslu frá Norðursiglingu, sem hafi breytt tveimur eldri fiskibátum, Ópal og Andvara, sem nú eru rafdrifnir. „Við ákváðum hins vegar að byggja nýjan bát í stað þess að endurgera gamlan,“ segir Agnes.

Hún flutti til Noregs rétt fyrir efnahagskreppuna fyrir rúmum áratug og hóf nám í stjórnmálafræði haustið 2008 við Háskólann í Ósló. Hún er nú 33 ára og er í sambúð í Tromsø þar sem verkefnin tengjast ekki háskólamenntuninni heldur miklu frekar því sem hún ólst upp við á Húsavík.

Agnes segir að fjölmörg fyrirtæki í Norður-Noregi skipuleggi skoðunarferðir á sjó með ferðamenn. Að mörgu leyti sé ferðaþjónustan þó ekki komin jafn langt í Tromsø og á Íslandi og fyrirtækin mest með gamla fiskibáta eða gamlar ferjur í bátaferðum með ferðamenn. Þau séu bjartsýn á reksturinn og telji sig hafa margt að bjóða umfram aðra.

Espen Larsen-Hakkebo og Agnes Árnadóttir í brúnni.
Espen Larsen-Hakkebo og Agnes Árnadóttir í brúnni. Ljósmynd/Aðsend

„Þess vegna þorðum við að fjárfesta í þessum rekstri,“ segir Agnes. „Þetta fer ágætlega af stað hjá okkur, en ferðamennirnir eru flestir frá Þýskalandi og Bretlandi. Það er þó alls ekki þannig að við séum ein um hituna hér í Tromsø, en við teljum að það sé nægt pláss fyrir fyrirtæki eins og okkar sem býður gæðaþjónustu á nýjum, fullkomnum, hljóðlátum og umhverfisvænum skipum. Við ætlum okkur og þurfum að veita mjög góða þjónustu, það verður okkar sérstaða.“

Með samning við Hurtigruten

Nýtt skip er vætanlegt í mars í vetur og hefur það fengið nafnið MS Bard. Stefnan verður þá tekin norður til Svalbarða, en þar hefur verið gerður samstarfssamningur til nokurra ára við Hurtigruten, stærsta ferjufyrirtæki í Noregi. Siglt verður frá Longyearbyen með ströndum þessarar norðlægu eyjar, m.a. til rússnesku bæjanna Barentsburg og Piramiden.

„Síðustu daga höfum við verið að þróa leiðirnar sem við siglum, þjálfa mannskapinn og vinna í sölumálum,“ segir Agnes. „Háannatíminn í þessum siglingum frá Tromsø er yfir veturinn frá nóvember og fram í febrúar, þá er yfirleitt mest af norðurljósum og hnúfubakar og háhyrningar elta síldina upp á grunnið. Norðurljósin eru langmesta aðdráttaraflið fyrir ferðamennina, hvalirnir koma þar á eftir.

Á Svalbarða er ferðamannatíminn hins vegar yfir sumartímann og Bard verður gerður út frá Tromsø yfir veturinn. Brim verður hins vegar gerður út frá Lofoten allt árið þegar skipin verða orðin tvö,“ segir Agnes, framkvæmdastjóri, leiðsögumaður og háseti, en frá því Brim Explorer hóf siglingar með ferðamenn laugardaginn 12. október hefur Agnes gengið í flest störf um borð.

MS Brim.
MS Brim. Ljósmynd/Aðsend
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 538,06 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 345,05 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 176,66 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 291,37 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Þorskur 137 kg
Steinbítur 76 kg
Skarkoli 64 kg
Samtals 277 kg
23.7.24 Glær KÓ 9 Handfæri
Þorskur 1.147 kg
Samtals 1.147 kg
23.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 513 kg
Ufsi 87 kg
Samtals 600 kg
23.7.24 Ísey ÞH 375 Handfæri
Þorskur 765 kg
Samtals 765 kg
23.7.24 Bobby 8 ÍS 368 Sjóstöng
Þorskur 104 kg
Steinbítur 18 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 125 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 538,06 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 345,05 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,98 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 176,66 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 291,37 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 22.7.24 607,72 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Þorskur 137 kg
Steinbítur 76 kg
Skarkoli 64 kg
Samtals 277 kg
23.7.24 Glær KÓ 9 Handfæri
Þorskur 1.147 kg
Samtals 1.147 kg
23.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 513 kg
Ufsi 87 kg
Samtals 600 kg
23.7.24 Ísey ÞH 375 Handfæri
Þorskur 765 kg
Samtals 765 kg
23.7.24 Bobby 8 ÍS 368 Sjóstöng
Þorskur 104 kg
Steinbítur 18 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 125 kg

Skoða allar landanir »