Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samráðsnefnd um fiskeldi. Nefndin er skipuð á grundvelli laga sem Alþingi samþykkti nýverið en henni er ætlað að vera stjórnvöldum til ráðgjafar vegna málefna fiskeldis.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Þar kemur fram að nefndinni beri að taka til umfjöllunar mál sem snerta fiskeldi, meðal annars að leggja mat á forsendur og úrvinnslu þeirra gagna sem áhættumat erfðablöndunar byggist á.
Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá umhverfis- og auðlindarráðuneytinu, Landssambandi veiðifélaga, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Hafrannsóknastofnun og Sambandi íslenskra sveitafélaga. Þá skipar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra formann nefndarinnar.
Nefndin er skipuð til fjögurra ára og er þannig skipuð:
Aðalmenn:
- Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri, án tilnefningar, formaður.
- Bjarni Jónsson, tilnefndur af umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
- Guðrún Sigurjónsdóttir, tilnefnd af Landssambandi veiðifélaga.
- Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
- Ragnar Jóhannsson, tilnefndur af Hafrannsóknastofnun.
- Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Varamenn:
- Unnur Brá Konráðsdóttir, án tilnefningar
- Álfheiður Ingadóttir, tilnefnd af umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
- Elías Blöndal Guðjónsson, tilnefndur af Landssambandi veiðifélaga.
- Kristján Þórarinsson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
- Sólveig Rósa Ólafsdóttir, tilnefnd af Hafrannsóknastofnun.
- Karl Óttar Pétursson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.