Flestir starfsmanna komnir á atvinnuleysisskrá

Frá fiskvinnslu á Akranesi fyrir nokkrum árum. Mynd úr safni.
Frá fiskvinnslu á Akranesi fyrir nokkrum árum. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Magnúsosn

Uppsagnir starfsmanna fiskvinnslunnar Ísfisks á Akranesi tóku gildi um síðustu mánaðamót og eru flestir þeirra rúmlega fjörutíu starfsmanna sem störfuðu hjá fyrirtækinu komnir á atvinnuleysisskrá. Starfsfólk fékk laun sín fyrir septembermánuð einungis greidd að hluta, en öllu var því sagt upp 30. september síðastliðinn.

Albert Svavarsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir að enn sé unnið að því að uppfylla ákveðna skilmála sem settir voru af Byggðastofnun sem skilyrði fyrir fyrirgreiðslu frá stofnuninni. Stjórn Byggðastofnunar tók jákvætt í lánsumsókn fyrirtækisins um miðjan október.

Vonast eftir lendingu á næstu tveimur vikum

Albert Svavarsson framkvæmdastjóri Ísfisks.
Albert Svavarsson framkvæmdastjóri Ísfisks. mbl.is/Haraldur Guðjónsson

Skilmálarnir, segir Albert í samtali við mbl.is, lúta meðal annars að hlutafé fyrirtækisins og samningum við lánadrottna. Hann vill ekki tjá sig nánar um það að svo stöddu og vonast til þess að úr leysist á næsta hálfa mánuðinum.

„Þau eru bara komin á atvinnuleysisbætur, flest öll,“ segir hann um starfsfólkið. „Það eru reyndar einhverjir sem eru komnir með aðra vinnu, en flestir eru komnir á atvinnuleysisbætur. Þetta er bara einhver biðstaða sem maður veit ekki hvað tekur langan tíma, en vonandi skýrist það innan tveggja vikna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 538,41 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 345,24 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 94,12 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 595,41 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 3.357 kg
Þorskur 1.060 kg
Steinbítur 689 kg
Skarkoli 191 kg
Samtals 5.297 kg
23.7.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Þorskur 137 kg
Steinbítur 76 kg
Skarkoli 64 kg
Samtals 277 kg
23.7.24 Glær KÓ 9 Handfæri
Þorskur 1.147 kg
Samtals 1.147 kg
23.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 513 kg
Ufsi 87 kg
Samtals 600 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 538,41 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 345,24 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 94,12 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 595,41 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 3.357 kg
Þorskur 1.060 kg
Steinbítur 689 kg
Skarkoli 191 kg
Samtals 5.297 kg
23.7.24 Tjálfi SU 63 Dragnót
Þorskur 137 kg
Steinbítur 76 kg
Skarkoli 64 kg
Samtals 277 kg
23.7.24 Glær KÓ 9 Handfæri
Þorskur 1.147 kg
Samtals 1.147 kg
23.7.24 Kristín ÞH 15 Handfæri
Þorskur 513 kg
Ufsi 87 kg
Samtals 600 kg

Skoða allar landanir »