Afhentu 180 þúsund undirskriftir

Mihela Hladin Wolfe, framkvæmdastjóri náttúruverndarverkefna Patagonia í Evrópu, afhenti forseta …
Mihela Hladin Wolfe, framkvæmdastjóri náttúruverndarverkefna Patagonia í Evrópu, afhenti forseta Alþingis kassa með 180.164 undirskriftum.Til hægri er Ryan Gellert, framkvæmdastjóri Evrópudeildar Patagonia. Ljósmynd/Golli

Fulltrúar íslenskra náttúruverndarsamtaka og bandaríska útivistarvöruframleiðandans Patagonia afhentu í morgun Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis, undirskriftir 180 þúsund manns sem skora á stjórnvöld að stöðva útgáfu leyfa fyrir opnu sjókvíaeldi.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Síðasta vor hleyptu Patagonia og WeMove af stað undirskriftarsöfnun með stuðningi íslenskra náttúruverndarsamtaka, sem meðal annars var beint til Alþingis. Þar birtist þessi áskorun:

„Til stjórnvalda og þingmanna þjóðþinga Íslands, Noregs, Skotlands og Írlands: Við sem áhyggjufullir borgarar í Evrópu skorum á ykkur að stöðva eyðingu villtra fiskistofna og nálægs lífríkis af völdum laxeldis í opnum sjókvíum. Við hvetjum ykkur til að stöðva strax útgáfu leyfa fyrir nýjum opnum sjókvíeldisstöðvum og setja fram skuldbindandi áætlun um að nema þegar útgefin leyfi úr gildi í áföngum.“

Um 180 þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorunina sem sýnir útbreiddan stuðning almennings við að opnu sjókvíaeldi verði hætt, að því er segir í tilkynningunni.

Fulltrúar Patagonia, Icelandic Wildlife Fund, Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF), Landssambands …
Fulltrúar Patagonia, Icelandic Wildlife Fund, Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF), Landssambands veiðifélaga, Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands á Austurvelli áður en undirskriftirnar voru afhentar. Ljósmynd/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »