Það eru gróf ósannindi að yfir þúsund störf hafi tapast í Walvis Bay í namibískum sjávarútvegi vegna Samherja. Þetta fullyrðir fyrirtækið í frétt sem það birti á vef sínum nú í kvöld. Tilefnið eru orð Helga Seljan í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun, en Helgi er einn þáttastjórnanda Kveiks sem fjallað hefur um málefni Samherja í Namibíu.
Segir Samherji namibískan sjávarútveg vera fjölbreyttan og margar ólíkar tegundir veiddar við strendur landsins. Félög tengd Samherja hafi hins vegar einungis tekið þátt í uppsjávarveiðum í namibísku efnahagslögsögunni og þá aðallega veiðum á hestamakríl.
„Árið 2011 var úthlutunarreglum breytt á uppsjávartegundum í Namibíu. Ákveðið var að færa um 25% af aflaheimildum í uppsjávarfiski í hendur namibískra félaga og einstaklinga, aðallega frá fyrirtækjum í Suður-Afríku sem höfðu haft heimildirnar. Eftir úthlutun aflaheimilda leituðu ákveðnir aðilar í namibískum sjávarútvegi eftir samstarfi við félag tengt Samherja um veiðar á þeim aflaheimildum sem þeir höfðu yfir á að ráða. Önnur namibísk félög, sem fengu úthlutað aflaheimildum, sömdu við útgerðarfélög frá Kína, Hollandi og Rússlandi,“ segir í fréttinni.
Alls voru 95% af veiddum afla í uppsjávarfiski fryst úti á sjó og á þessu hafi engin breyting orðið milli áranna 2011 og 2012. „Það má því segja að fjöldi starfa í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski í namibískum sjávarútvegi hafi haldist óbreyttur þótt störfin hafi flust á milli fyrirtækja og skipa eftir að breytingar urðu á úthlutun heimilda.“ Sú fullyrðing að þúsund störf hafi tapast í namibískum sjávarútvegi vegna innkomu félags sem tengist Samherja sé því þvættingur.
„Hlutfall Namibíumanna í áhöfnum þeirra skipa sem félög tengd Samherja hafa gert út í namibísku efnahagslögsögunni hefur fjölgað jafnt og þétt og er í dag um 60%. Sem dæmi voru hundrað manns í áhöfn Heinaste. Af þessum hundrað voru að jafnaði fjórir áhafnarmeðlimir með íslenskt ríkisfang en aðrir í áhöfninni frá Namibíu og Austur-Evrópu.“
Helgi Seljan hafi því sagt ósatt í morgunútvarpi Rásar 2 og séu ummælin eingöngu til þess fallin að valda fyrirtækinu tjóni. Segir Samherji ummælin sýna „hversu frjálslega fréttamenn Ríkisútvarpsins“ fari með staðreyndir.