Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. vegna fiskeldis á landi að Núpum í Ölfusi. Um er að ræða stækkun á eldra rekstrarleyfi úr 150 tonna seiðaeldi af laxi og bleikju í 300 tonna seiðaeldi af laxi og bleikju, segir í tilkynningu frá MAST.
Þá segir í umsögn skipulagsstofnunar að fyrirhuguð framkvæmd sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og því framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Áætlað er að reisa nýtt eldishús á grunni eldra húss sem brann og verður nýja húsið um 20 metrum lengra og gólfflötur stækkar um 260 fermetra.
Um þrjátíu slökkviliðsmenn börðust við eld í fiskeldisstöðinni aðfararnótt 27. júní 2018. Það var nágranni sem tilkynnti um reyk og eld í húsinu. Slökkviliðinu tókst að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist út í nærliggjandi hús og var allan tímann bundinn við eina byggingu. Þak hennar hrundi að hluta.
Við rannsókn kom í ljós að upptök eldsins mátti rekja til rafmótors við fóðurgjafabúnað og var hluti búnaðarins haldlagður til frekari rannsóknar hjá sérfræðingi Mannvirkjastofnunar.
Töluvert tjón fylgdi brunanum og sendi Sjóvá-Almennar tryggingar út afkomuviðvörun meðal annars vegna brunans. Var tilkynningin einnig sögð tengjast öðrum stórum bruna árið 2018, en það var bruninn í húsnæði í Miðhrauni í Garðabæ. Sjóvá gerði ráð fyrir 97% samsettu hlutfalli á öðrum ársfjórðungi og 96% fyrir árið 2018.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.11.24 | 530,81 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.11.24 | 560,82 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.11.24 | 345,49 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.11.24 | 257,15 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.11.24 | 199,50 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.11.24 | 282,11 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.11.24 | 232,84 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 22.11.24 | 127,00 kr/kg |
23.11.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 2.305 kg |
Þorskur | 904 kg |
Keila | 95 kg |
Hlýri | 57 kg |
Ufsi | 17 kg |
Karfi | 7 kg |
Steinbítur | 3 kg |
Samtals | 3.388 kg |
23.11.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Ýsa | 5.110 kg |
Þorskur | 3.886 kg |
Langa | 62 kg |
Steinbítur | 50 kg |
Karfi | 22 kg |
Keila | 13 kg |
Skarkoli | 2 kg |
Samtals | 9.145 kg |
23.11.24 Vigur SF 80 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.191 kg |
Ýsa | 90 kg |
Keila | 88 kg |
Hlýri | 51 kg |
Karfi | 33 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 1.457 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.11.24 | 530,81 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.11.24 | 560,82 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.11.24 | 345,49 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.11.24 | 257,15 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.11.24 | 199,50 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.11.24 | 282,11 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.11.24 | 232,84 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 22.11.24 | 127,00 kr/kg |
23.11.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 2.305 kg |
Þorskur | 904 kg |
Keila | 95 kg |
Hlýri | 57 kg |
Ufsi | 17 kg |
Karfi | 7 kg |
Steinbítur | 3 kg |
Samtals | 3.388 kg |
23.11.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Ýsa | 5.110 kg |
Þorskur | 3.886 kg |
Langa | 62 kg |
Steinbítur | 50 kg |
Karfi | 22 kg |
Keila | 13 kg |
Skarkoli | 2 kg |
Samtals | 9.145 kg |
23.11.24 Vigur SF 80 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.191 kg |
Ýsa | 90 kg |
Keila | 88 kg |
Hlýri | 51 kg |
Karfi | 33 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 1.457 kg |