Samherji mun innleiða nýtt stjórnunar- og regluvörslukerfi

Björgólfur Jóhannsson.
Björgólfur Jóhannsson. mbl.is/Styrmir Kári

Samherji hefur gripið til ráðstafana til að innleiða nýtt stjórnunar- og regluvörslukerfi. Ákvörðun um innleiðingu kerfisins var tekin á grundvelli reynslu af starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Nýja kerfið verður hluti af framtíðarstjórnun Samherjasamstæðunnar og mun ná til Samherja og allra dótturfyrirtækja.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Samherji mun þróa og innleiða heildrænt stjórnunar- og regluvörslukerfi sem byggist á áhættuskipulagi fyrirtækisins, meðal annars með áherslu á spillingu, efnahagslegar refsiaðgerðir og peningaþvætti,“ segir Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, í tilkynningunni, en stefnt er að því að ljúka innleiðingu kerfisins síðar á þessu ári.

„Þetta kerfi mun gegna lykilhlutverki í nýrri áætlun þar sem við munum krefjast þess að allir starfsmenn taki virkan þátt í ferli til að endurmeta gildi okkar, menningu og starfsvenjur. Við munum síðan innleiða verkferla fyrir áhættumat og siðareglur í samræmi við kerfið,“ segir Björgólfur enn fremur. 

Björgólfur segir að þrátt fyrir alvarlegar ásakanir á hendur félaginu í fjölmiðlum hafi tekist að verja öll sambönd við viðskiptavini og samstarfsaðila þess, bæði hér innanlands og erlendis. Samherji hafi náð að þjónusta alla viðskiptavini sína með sama hætti og félagið hafi gert í gegnum tíðina, að því er fram kemur á vef félagsins. 

„Starfsmenn okkar hafa, eins og alltaf, unnið frábært starf til að ganga úr skugga um að við afhendum afurðir í hæsta gæðaflokki hér heima og á hinum alþjóðlega markaði,“ segir Björgólfur.

Samherji er um þessar mundir að draga úr starfsemi sinni í Namibíu með það að markmiði að hætta alfarið rekstri í landinu. Hins vegar er ljóst að það mun taka einhvern tíma. Allar ákvarðanir vegna starfseminnar í Namibíu verða teknar í nánu samráði við þar til bær stjórnvöld og í samræmi við gildandi lög og reglur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 539,93 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 345,86 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Petra ÓF 88 Lína
Þorskur 1.884 kg
Ýsa 1.642 kg
Steinbítur 632 kg
Samtals 4.158 kg
23.7.24 Hulda GK 17 Línutrekt
Þorskur 976 kg
Steinbítur 514 kg
Ýsa 410 kg
Sandkoli 13 kg
Skarkoli 6 kg
Hlýri 5 kg
Langa 1 kg
Samtals 1.925 kg
23.7.24 Andri SH 450 Grásleppunet
Grásleppa 477 kg
Samtals 477 kg
23.7.24 Hróðgeir Hvíti NS 89 Handfæri
Ufsi 129 kg
Ýsa 86 kg
Samtals 215 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 539,93 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 345,86 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Petra ÓF 88 Lína
Þorskur 1.884 kg
Ýsa 1.642 kg
Steinbítur 632 kg
Samtals 4.158 kg
23.7.24 Hulda GK 17 Línutrekt
Þorskur 976 kg
Steinbítur 514 kg
Ýsa 410 kg
Sandkoli 13 kg
Skarkoli 6 kg
Hlýri 5 kg
Langa 1 kg
Samtals 1.925 kg
23.7.24 Andri SH 450 Grásleppunet
Grásleppa 477 kg
Samtals 477 kg
23.7.24 Hróðgeir Hvíti NS 89 Handfæri
Ufsi 129 kg
Ýsa 86 kg
Samtals 215 kg

Skoða allar landanir »