Svörin dekka spurningarnar ágætlega

Líneik Anna Sævarsdóttir á Alþingi.
Líneik Anna Sævarsdóttir á Alþingi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mjög eðlilegt er að fá Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis á miðvikudag og spyrja hann nánar út í stöðu hans gagnvart útgerðarfyrirtækinu Samherja.

Þetta segir Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

Efni fundarins verður frumkvæðisathugun á hæfi ráðherrans. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur svarað beiðni nefndarinnar þess efnis.

Líneik Anna segist vera sátt við svör ráðuneytisins. „Mér finnst þau dekka þessar spurningar ágætlega sem við lögðum fram um meðferð stjórnsýslumála og þetta sérstaka hæfi,“ segir hún. Engu að síður sé gott að fylgja þessari athugun eftir með því að kalla ráðherra á fund nefndarinnar.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. mbl.is/Hari

Farið yfir næstu skref

Á fundi nefndarinnar var einnig farið yfir næstu skref í tengslum við verklag ráðherra og ábendingar framkvæmdahóps FATF vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, var framsögumaður málsins en er nú hættur í nefndinni og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, tekin við því. Líneik reiknar með því að málið komist á dagskrá nefndarinnar í næsta mánuði.

Sömuleiðis var farið yfir næstu skref vegna skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um rannsókn á erlendri þátttöku í 45,8% eignarhlut í Búnaðarbanka Íslands hf. Ekki er ljóst hvenær það mál kemst á dagskrá nefndarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.7.24 397,56 kr/kg
Þorskur, slægður 17.7.24 352,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.7.24 356,14 kr/kg
Ýsa, slægð 17.7.24 154,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.7.24 161,46 kr/kg
Ufsi, slægður 17.7.24 214,63 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 17.7.24 262,52 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Særún EA 251 Þorskfisknet
Þorskur 867 kg
Ýsa 120 kg
Samtals 987 kg
17.7.24 Jenny HU 40 Handfæri
Þorskur 873 kg
Ýsa 24 kg
Steinbítur 14 kg
Samtals 911 kg
17.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 119 kg
Þorskur 97 kg
Hlýri 60 kg
Ýsa 48 kg
Ufsi 3 kg
Keila 3 kg
Samtals 330 kg
17.7.24 Jökull SF 75 Handfæri
Þorskur 791 kg
Samtals 791 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.7.24 397,56 kr/kg
Þorskur, slægður 17.7.24 352,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.7.24 356,14 kr/kg
Ýsa, slægð 17.7.24 154,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.7.24 161,46 kr/kg
Ufsi, slægður 17.7.24 214,63 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 17.7.24 262,52 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.7.24 Særún EA 251 Þorskfisknet
Þorskur 867 kg
Ýsa 120 kg
Samtals 987 kg
17.7.24 Jenny HU 40 Handfæri
Þorskur 873 kg
Ýsa 24 kg
Steinbítur 14 kg
Samtals 911 kg
17.7.24 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína
Steinbítur 119 kg
Þorskur 97 kg
Hlýri 60 kg
Ýsa 48 kg
Ufsi 3 kg
Keila 3 kg
Samtals 330 kg
17.7.24 Jökull SF 75 Handfæri
Þorskur 791 kg
Samtals 791 kg

Skoða allar landanir »