Áframhaldandi aukning

Laxeldi hjá Fiskeldi Austfjarða.
Laxeldi hjá Fiskeldi Austfjarða.

Sérfræðingar búast við áframhaldandi aukningu á framleiðslu lax í sjókvíum. Framleiðslan eykst væntanlega um 5-7 þúsund tonn í ár og fer yfir 30 þúsund tonna markið og gæti farið í 35-37 þúsund tonn á næsta ári.

Aukningin verður þó ekkert í líkingu við það sem varð á síðasta ári þegar framleiðsla á laxi tvöfaldaðist. Áætlanir þessar grundvallast á upplýsingum um aukingu í útsetningu laxaseiða í sjókvíar. Á síðasta sumri voru settar út um 9,3 milljónir seiða, tveimur milljónum seiða meira en árið áður, samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar. Raunar hefur seiðunum fjölgað taktvisst um tvær milljónir seiða á ári í þrjú ár.

Öll aukningin úr sjókvíum

Öll aukningin í fiskeldi á síðasta ári kom úr sjókvíum og mest úr fjörðum Vestfjarða og Austfjarða. Um þrír fjórðu laxaframleiðslunnar koma frá þessum tveimur eldissvæðum og frá fjórum stærstu fiskeldisfyrirtækjunum. Arnarlax sem er með höfuðstöðvar á Bíldudal er langstærsti framleiðandi laxaafurða. Framleiddi 11.700 tonn á síðasta ári sem er 23% aukning frá fyrra ári. Hin sjóeldisfyrirtækin eru yngri en öll í örum vexti og framleiddu 4 til 5 þúsund tonn í fyrra.

Framleiðsla á bleikju jókst meira á síðasta ári en áætlanir gerðu ráð fyrir, eða um 29%, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag. Búist er við áframhaldandi jafnri og stöðugri aukningu. Mjög hefur dregið úr eldi á regnbogasilungi hér við land en breyting á því er í aðsigi því að minnsta kosti tvö fyrirtæki eru að undirbúa eldi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.7.24 399,16 kr/kg
Þorskur, slægður 16.7.24 406,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.7.24 367,05 kr/kg
Ýsa, slægð 16.7.24 309,23 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.7.24 151,84 kr/kg
Ufsi, slægður 16.7.24 164,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 16.7.24 349,26 kr/kg
Litli karfi 8.7.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.7.24 Kristbjörg SH 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.708 kg
Samtals 2.708 kg
16.7.24 Lára VI ÍS 112 Handfæri
Þorskur 430 kg
Ufsi 21 kg
Samtals 451 kg
16.7.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 752 kg
Karfi 20 kg
Samtals 772 kg
16.7.24 Ingi Rúnar AK 35 Handfæri
Þorskur 770 kg
Samtals 770 kg
16.7.24 Stapavík AK 8 Handfæri
Þorskur 685 kg
Karfi 36 kg
Ufsi 19 kg
Ýsa 16 kg
Samtals 756 kg

Skoða allar landanir »