Samherji hafi ekki misst neina viðskiptavini

„Við höfum ekki tapað neinum viðskiptavinum hingað til en þeir …
„Við höfum ekki tapað neinum viðskiptavinum hingað til en þeir hafa áhyggjur af þessu og við erum búin að vera að vinna náið með þeim,“ er haft eftir Björgólfi í viðtalinu, sem birtist á þriðjudaginn. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja, sagði í viðtali við fiskveiðifréttavefinn IntraFish í vikunni að Samherji hefði ekki tapað neinum viðskiptavinum frá því Samherjaskjölin voru birt um miðjan nóvember.

„Við höfum ekki tapað neinum viðskiptavinum hingað til en þeir hafa áhyggjur af þessu og við erum búin að vera að vinna náið með þeim,“ er haft eftir Björgólfi í viðtalinu, sem birtist á þriðjudaginn.

Þar segir Björgólfur einnig að hann eigi von á því að innanhússrannsókn norsku lögfræðistofunnar Wikborg Rein gæti lokið í apríl og að hann eigi ekki von á því að vera í forstjórastóli sjávarútvegsfyrirtækisins nema fram á mitt þetta ár.

Hann útilokar ekki að Þorsteinn Már Baldvinsson hefji aftur störf þegar Wikborg Rein skilar skýrslu sinni til Samherja, en segir það velta á því hver niðurstaða innanhússrannsóknarinnar verði.

„[Þorsteinn] hefur verið í sjávarútvegi á Íslandi í fjölda ára og er örugglega sá maður sem mest veit um fiskvinnslu bæði á Íslandi og í Evrópu,“ hefur IntraFish eftir forstjóranum.

Björgólfur hafnar því alfarið í viðtalinu að störf Wikborg Rein fyrir Samherja séu til málamynda og miðist að því að sýkna fyrirtækið af þeim ásökunum sem settar hafa verið fram og eru rannsakaðar af yfirvöldum hérlendis og í Namibíu.

„Fyrirtækið sjálft vill vita hvað var að gerast,“ segir Björgólfur við IntraFish.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 539,60 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 4.262 kg
Ýsa 1.107 kg
Steinbítur 275 kg
Hlýri 93 kg
Keila 29 kg
Karfi 3 kg
Samtals 5.769 kg
23.7.24 Kristín ÓF 49 Handfæri
Þorskur 518 kg
Samtals 518 kg
23.7.24 Margrét GK 33 Lína
Þorskur 3.054 kg
Ýsa 2.405 kg
Steinbítur 140 kg
Keila 35 kg
Hlýri 23 kg
Langa 23 kg
Karfi 3 kg
Samtals 5.683 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 539,60 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 4.262 kg
Ýsa 1.107 kg
Steinbítur 275 kg
Hlýri 93 kg
Keila 29 kg
Karfi 3 kg
Samtals 5.769 kg
23.7.24 Kristín ÓF 49 Handfæri
Þorskur 518 kg
Samtals 518 kg
23.7.24 Margrét GK 33 Lína
Þorskur 3.054 kg
Ýsa 2.405 kg
Steinbítur 140 kg
Keila 35 kg
Hlýri 23 kg
Langa 23 kg
Karfi 3 kg
Samtals 5.683 kg

Skoða allar landanir »