Bréf um líðan starfsmanna kom á óvart

Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir bréf FÍN koma á óvart …
Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir bréf FÍN koma á óvart þar sem talsvert er síðan uppsagnir starfsmanna áttu sér stað. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Ég er ekki sáttur við að vera brigslaður við að bera ekki virðingu fyrir mínu fólki. Það er það síðasta sem ég vil heyra,“ segir Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, í samtali við 200 mílur um bréf sem Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) sendi forstjóranum í síðustu viku. Þar segir að félagsmenn FÍN upplifi það að þeim sé hótað og að ágreiningur sé þaggaður niður.

Hann telur bréfið ekki kalla á einhver sérstök viðbrögð af hálfu Hafrannsóknastofnunar. „Við fengum þetta bréf og höfum svo sem ekki brugðist neitt við því ennþá og óvíst að við gerum það.“

Spurður hvort hann telji erfiðan anda innan stofnunarinnar, svarar Sigurður því neitandi. „Ekki viljum við meina það. Hann var ekki góður – eðlilega – þegar við þurftum að grípa til uppsagna og við höfum fullan skilning á því, en fólk er nú að jafna sig á því og þetta kemur dálítið á óvart að fá þetta bréf núna. Ég veit ekki hversu mikið þetta kjarafélag er inn í málum hér, en kannski eru þeir seinir, á eftir í þróuninni,“ útskýrir hann og vísar til þess að uppsagnir hjá stofnuninni áttu sér stað í nóvember í fyrra.

Aðstæður batnandi

Þá er ekki tilefni til þess að hefja skoðun á því hvernig sé haldið á starfsmannamálum vegna bréfsins, að mati forstjórans. „Við erum með mánaðarlega starfsmannafundi, það eru sviðsfundir að lágmarki tvisvar í mánuði og það eru árleg starfsmannaviðtöl. Þannig að við erum með öll spjót úti – hlusta og hlera hvernig fólki líður og reynum að bæta úr þar sem það er hægt.“

Mikil áhersla er lögð á að tryggja gott starfsumhverfi, að sögn Sigurðar sem jafnframt segir aðstæður innanhúss hafi farið batnandi að undanförnu. „Auðvitað var það ákveðið áfall fyrir fólk að upplifa þessar uppsagnir. Það voru ekki nema fjórir náttúrufræðingar sem misstu vinnuna, þetta var aðallega fólk í stoðþjónustu sem missti starfið. En auðvitað eru svoleiðis mál alltaf erfið og maður fer ekki í svoleiðis aðgerðir að gamni sínu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.2.25 623,92 kr/kg
Þorskur, slægður 9.2.25 790,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.2.25 455,61 kr/kg
Ýsa, slægð 9.2.25 411,58 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.2.25 245,09 kr/kg
Ufsi, slægður 7.2.25 303,57 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 9.2.25 380,63 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót
Þorskur 1.528 kg
Skarkoli 1.359 kg
Sandkoli 735 kg
Steinbítur 105 kg
Grásleppa 30 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 3.782 kg
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 75 kg
Steinbítur 47 kg
Ýsa 31 kg
Þorskur 28 kg
Samtals 181 kg
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 460 kg
Langa 172 kg
Ýsa 93 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 7 kg
Samtals 775 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.2.25 623,92 kr/kg
Þorskur, slægður 9.2.25 790,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.2.25 455,61 kr/kg
Ýsa, slægð 9.2.25 411,58 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.2.25 245,09 kr/kg
Ufsi, slægður 7.2.25 303,57 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 9.2.25 380,63 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.2.25 Hafdís SK 4 Dragnót
Þorskur 1.528 kg
Skarkoli 1.359 kg
Sandkoli 735 kg
Steinbítur 105 kg
Grásleppa 30 kg
Ýsa 25 kg
Samtals 3.782 kg
8.2.25 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 75 kg
Steinbítur 47 kg
Ýsa 31 kg
Þorskur 28 kg
Samtals 181 kg
8.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 460 kg
Langa 172 kg
Ýsa 93 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 7 kg
Samtals 775 kg

Skoða allar landanir »