Innan við 1% ferða á sjó undir eftirliti

Starfandi forstjóri Fiskistofu spyr hvort 1% þekja í sjóeftirliti geti …
Starfandi forstjóri Fiskistofu spyr hvort 1% þekja í sjóeftirliti geti talist fullnægjandi. mbl.is/Árni Sæberg

Starfsmenn Fiskistofu voru 674 eftirlitsdaga á sjó á árinu 2019 og starfa um 30 starfsmenn við veiðieftirlit stofnunarinnar. Þá komu upp 219 brotamál í fyrra og hafa slík tilvik verið 1.443 á árunum 2013 til 2019.

„Eftirlit með fiskveiðiauðlindinni er mjög umfangsmikið en mannaflinn takmarkaður,“ segir Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, starfandi forstjóri Fiskistofu, í ViðskiptaMogganum í dag. Hún bendir á að um er að ræða stórar stærðir þegar litið er til heildarafla, fjölda útgefinna veiðileyfa og fjölda hafnarvoga.

En heildarafli íslenskra fiskiskipa nam 1.048 þúsund tonnum árið 2019. Þá var fjöldi útgefinna veiðileyfa til aflamarksskipa og krókaaflamarksbáta 1.148 og fjöldi sérveiðileyfa 1.103. Jafnframt eru um 60 hafnarvogir í landinu auk þess að um hundrað fiskvinnslur, fiskimarkaðir og aðrir aðilar hafi vigtunarleyfi frá Fiskistofu.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Áslaug segir stjórnvöld ekki hafa skilgreint hversu umfangsmikið eftirlit stofnunarinnar á að vera. „Það er ekkert lágmarkseftirlit sem skilyrði um að lögbundið eftirlit sé uppfyllt. Það liggur fyrir að eftirlit okkar á sjó er innan við eitt prósent allra veiðiferða. Miðað við þessi verðmæti sem eru undir hlýtur það að teljast lágt hlutfall. Á sama tíma berast ábendingar um brottkast afla og fyrir liggja sterkar vísbendingar hjá stofnuninni um að slíkt viðgangist. Því er eðlilegt að velta upp þeirri spurningu hvort 1% þekja í sjóeftirliti geti talist fullnægjandi í baráttu gegn brottkasti,“ spyr Áslaug.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.7.24 543,10 kr/kg
Þorskur, slægður 23.7.24 302,28 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.7.24 348,33 kr/kg
Ýsa, slægð 23.7.24 156,94 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.7.24 95,95 kr/kg
Ufsi, slægður 23.7.24 281,08 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 23.7.24 593,78 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.7.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 1.229 kg
Ýsa 291 kg
Þorskur 103 kg
Samtals 1.623 kg
23.7.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.514 kg
Ýsa 874 kg
Keila 571 kg
Langa 558 kg
Steinbítur 320 kg
Hlýri 233 kg
Ufsi 117 kg
Karfi 18 kg
Samtals 12.205 kg
23.7.24 Eyrarröst ÍS 201 Handfæri
Þorskur 2.848 kg
Ufsi 83 kg
Samtals 2.931 kg

Skoða allar landanir »